Velferðarráð

1334. fundur 03. mars 2021 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá

1.Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80 2002

Málsnúmer 2021023247Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum og umsögn velferðarsviðs.

Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.

2.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2020

Málsnúmer 2020040595Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir rekstur þeirra málaflokka sem heyra undir velferðarráð fyrir árið 2020.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.

3.Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021

Málsnúmer 2021023280Vakta málsnúmer

Lögð fram verk- og tímaáætlun vegna tillagna í úttekt HLH ráðgjafar um málefni fatlaðs fólks.

4.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Lagt fyrir minnisblað dagsett 24. febrúar 2021 um stöðu verkefna í aðgerðaáætlun með velferðarstefnu.

5.Starfsáætlun velferðarráðs 2021

Málsnúmer 2020090386Vakta málsnúmer

Farið yfir verkefni í starfsáætlun ársins 2021.

Fundi slitið - kl. 17:00.