Velferðarráð

1280. fundur 20. júní 2018 kl. 14:00 - 16:04 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Maron Pétursson
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri öa
  • Laufey Þórðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu búsetusviðs
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá
Maron Pétursson L-lista sat fundinn í forföllum Róberts Freys Jónssonar.

1.Akursíða 2 og 4

Málsnúmer 2018060374Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð starfsfólks fjölskyldusviðs og búsetusviðs dagsett 7. júní 2018, minnisblað dagsett 15. júní 2018 varðandi möguleg kaup á fimm íbúðum í Akursíðu 2-4 á Akureyri og kauptilboð dagsett 19. júní 2018.

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að íbúðirnar við Akursíðu 2-4 verði keyptar og vísar málinu áfram til umhverfis- og mannvirkjaráðs og bæjarráðs.

2.Velferðarráð - handbók 2018 - 2022

Málsnúmer 2018060377Vakta málsnúmer

Stuttar kynningar frá sviðsstjórum á starfsemi sviðanna og því sem er efst á baugi.

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð þakkar sviðsstjórum fyrir góðar kynningar.

3.Fundaáætlun velferðarráðs

Málsnúmer 2015060008Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fundaáætlun velferðarráðs fyrir ágúst til desember 2018.

4.Fjárhagsáætlun 2019 - velferðarsvið

Málsnúmer 2018060382Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um fjárhagsáætlunarferli, tímalínu og forsendur fjárhagsáætlunar vegna ársins 2019.

Fundi slitið - kl. 16:04.