Umhverfisnefnd

78. fundur 11. desember 2012 kl. 16:15 - 17:54 Hof
Nefndarmenn
  • Hulda Stefánsdóttir formaður
  • Páll Steindór Steindórsson
  • Jón Ingi Cæsarsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sif Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Staðardagskrá 21 - endurskoðun 2012

Málsnúmer 2011050056Vakta málsnúmer

Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála kynnti niðurstöður íbúaþings sem haldið var í byrjun nóvember sl. í tengslum við endurskoðun Staðardagskrár 21.

Umhverfisnefnd felur starfsmönnum framkvæmdadeildar áframhaldandi vinnu.

2.Glerárdalur - fólkvangur

Málsnúmer 2012080081Vakta málsnúmer

Farið yfir tillögur að gerð fólkvangsins á Glerárdal. Lagt fram til kynningar.

3.Krossanesborgir - fuglatalning 2013

Málsnúmer 2012120046Vakta málsnúmer

Rætt um hvort fara eigi í fuglatalningu í Krossanesborgum á árinu 2013 en það hefur verið gert á 5 ára fresti frá árinu 1998.

Umhverfisnefnd samþykkir að láta gera fuglatalningu í Krossanesborgum vorið 2013.

Fundi slitið - kl. 17:54.