Umhverfis- og mannvirkjaráð

154. fundur 23. janúar 2024 kl. 08:15 - 11:30 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Anton Bjarni Bjarkason áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
  • Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Red Bull - verkefni í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2024011171Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Red Bull Japan Co.,Ltd. varðandi gerð stökkpalls og upptöku myndefnis í Hlíðarfjalli.

Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sat fundinn undir þessum lið.

2.Bifreiðastæðasjóður - endurskoðun á samþykktum

Málsnúmer 2024011020Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að endurskoðuðum samþykktum fyrir Bifreiðastæðasjóð Akureyrarbæjar.

3.Bifreiðastæðasjóður - verklagsreglur um breytingar á gjaldskyldu og annarri flokkun bifreiðastæða

Málsnúmer 2024011019Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að verklagsreglur um breytingar á gjaldskyldu og annarri flokkun bifreiðastæða.

4.Brú yfir Glerá - Skarðshlíð_Glerártorg

Málsnúmer 2022120693Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi framkvæmdaáætlun fyrir byggingu jöfnunarstöðvar strætó við Glerá og brúar yfir Glerá milli Glerártorgs og Skarðshlíðar.

Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

5.Athafnasvæði við Hlíðarfjallsveg - leiga

Málsnúmer 2024011017Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi framlengingu á leigusamningi á athafnasvæði við Hlíðarfjallsveg.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði í samningi um svæðið og framlengja hann um eitt ár.

6.Múrbrot og gler - móttökusvæði

Málsnúmer 2021060782Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi áform um meðhöndlunarstað fyrir móttöku múrbrots.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sátu fundinn undir þessum lið

7.Compact of Mayors - verkefni umhverfis- og mannvirkjasviðs

Málsnúmer 2018020409Vakta málsnúmer

Stefán Gíslason ráðgjafi frá Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. kynnti kolefnisfótspor Akureyrarbæjar vegna ársins 2022.

Fundi slitið - kl. 11:30.