Red Bull - verkefni í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2024011171

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 154. fundur - 23.01.2024

Lagður fram til kynningar samningur við Red Bull Japan Co.,Ltd. varðandi gerð stökkpalls og upptöku myndefnis í Hlíðarfjalli.

Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð - 3835. fundur - 25.01.2024

Lögð fram drög að samningi við Red Bull Japan Co.,Ltd. varðandi afnot af Hlíðarfjalli, gerð stökkpalls og upptöku myndefnis vegna viðburðar á vegum fyrirtækisins.

Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs og Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur forstöðumanni Hlíðarfjalls að vinna málið áfram og ganga frá samningnum.