Umhverfis- og mannvirkjaráð

129. fundur 06. desember 2022 kl. 08:15 - 11:15 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Sindri Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
  • Anton Bjarni Bjarkason vara-áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Hildur Brynjarsdóttir D-lista mætti í fjarveru Þórhalls Harðarsonar.

1.Fundaáætlun umhverfis- og mannvirkjaráðs 2023

Málsnúmer 2022120107Vakta málsnúmer

Fundaáætlun fyrir árið 2023 lögð fyrir ráðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða fundaáætlun.

2.Reiðvegir - beiðni um lagfæringar

Málsnúmer 2022100351Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 26. október 2022 með beiðni um lagfæringar á reiðleiðum.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.

3.Körfuboltavöllur við Glerárskóla

Málsnúmer 2021020467Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat á framkvæmdum á körfuboltavelli við Glerárskóla.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

4.Oddeyrarskóli - lóð

Málsnúmer 2022042022Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett í desember 2022 vegna framkvæmda á lóð við Oddeyrarskóla.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

5.Skautahöllin á Akureyri - viðbygging við félagsaðstöðu

Málsnúmer 2021120730Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað vegna búnaðarkaupa í Skautahöllina á Akureyri.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir búnaðarkaup að upphæð kr. 10 milljónir sem verði tekin af búnaðarkaupasjóði UMSA vegna ársins 2023.

6.Sandgerðisbót - bygging íbúða

Málsnúmer 2020040029Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað vegna fyrirhugaðrar byggingar á tveimur byggingum í viðbót.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

7.Menningarhúsið Hof - leiklistarrými

Málsnúmer 2022090102Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett í desember 2022 vegna framkvæmda á leiklistarrými í Hofi.

8.UMSA - rekstur 2022

Málsnúmer 2022090090Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi rekstur UMSA fyrstu 10 mánuði ársins 2022.

9.Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur

Málsnúmer 2019090381Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurnýjuðum samningi við Skógræktarfélag Eyfirðinga.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundin undir þessum lið.

10.Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 2021101496Vakta málsnúmer

Farið yfir ábendingar við drög að svæðisáætlun í úrgangsmálum.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundin undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur embættismönnum að gera athugasemdir við svæðisáætlunina út frá umræðum á fundinum.

Fundi slitið - kl. 11:15.