Umhverfis- og mannvirkjaráð

118. fundur 08. apríl 2022 kl. 08:15 - 09:25 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Rafskútuleiga - fyrirspurn

Málsnúmer 2022020224Vakta málsnúmer

Liður 9 í fundargerð skipulagsráðs 9. mars 2022:

Erindi Valdemars Viðarssonar dagsett 3. febrúar 2022 fyrir hönd ATOM 22 ehf. þar sem óskað er eftir leyfi fyrir stöðvalausri rafskútuleigu á Akureyri.

Erindið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 9. febrúar sl. en afgreiðslu þess var frestað.

Skipulagsráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og leggur til að gerður verði þjónustusamningur við umsækjanda um stöðvalausa rafskútuleigu.

Er afgreiðsla erindisins með fyrirvara um jákvæða umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð gerir engar athugasemdir við erindið, enda verði þjónustusamningurinn sambærilegur samningi við aðra rafskútuleigu.

2.LED-væðing götulýsingar - staða og framhald

Málsnúmer 2022042019Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 7. apríl 2022 varðandi LED-væðingu götulýsingar á Akureyri.

Eiríkur Jónasson verkefnastjóri viðhalds gatna og stíga sat fundinn undir þessum lið.

3.GLSK - Glerárskóli - endurbætur A-álmu

Málsnúmer 2022020337Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 7. apríl 2022 varðandi fyrirhugað útboð.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

4.Oddeyrarskóli - lóð

Málsnúmer 2022042022Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 7. apríl 2022 varðandi fyrirhugað útboð.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds og Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 09:25.