Umhverfis- og mannvirkjaráð

24. fundur 15. desember 2017 kl. 11:00 - 12:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Eiríkur Jónsson varaformaður
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Óskar Ingi Sigurðsson B-lista mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Isaksen.

1.Stöðuskýrslur rekstrar 2017

Málsnúmer 2017020164Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla fyrir rekstur umhverfis- og mannvirkjasviðs dagsett 15. desember 2017.

2.Umhverfis- og mannvirkjasvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2017050113Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu á ráðningum nýrra starfsmanna á sviðið.

3.Umhverfismiðstöð - sala tækja 2017

Málsnúmer 2017120112Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð sem bárust í tæki sem auglýst voru til sölu hjá Umhverfismiðstöð í nóvember.

4.Hjallalundur 20-205 - kaup á íbúð

Málsnúmer 2017120038Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar kaupsamningur fyrir Hjallalund 20, íbúð 205.

5.Hæfingarstöðin Skógarlundi 1 - kaup eignarinnar af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs

Málsnúmer 2017010535Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 12. desember 2017 til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar sem óskað er eftir að kaupa eignina. Einnig samþykki Jöfnunarsjóðsins fyrir sölu eignarinnar til Akureyrarkaupstaðar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin á húsinu.

6.Naustahverfi 7. áfangi - Hagar

Málsnúmer 2017080054Vakta málsnúmer

Lögð fram tilboð sem bárust í gatnagerð og lagnir. Alls bárust tvö tilboð:

GV Gröfur ehf. kr. 268.397.726 83%

G.Hjálmarsson hf. kr. 379.950.900 118%



Kostnaðaráætlun kr. 323.162.509

Einnig lögð fram stöðuskýrsla 3 fyrir verkið dagsett 15. desember 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, GV Gröfur ehf.

7.Forgangsröðun umferðaröryggisaðgerða á þjóðvegum um Akureyri

Málsnúmer 2016010071Vakta málsnúmer

Lögð fram framkvæmdaáætlun vegna umferðaröryggisaðgerða í samstarfi við Vegagerðina. Einnig lögð fram útboðsgögn vegna framkvæmdanna dagsett 14. desember 2017.

8.Árholt - húsaleigusamningur við AkureyrarAkademíuna

Málsnúmer 2015030019Vakta málsnúmer

Lagður fram framlengdur húsaleigusamningur við AkureyrarAkademíuna dagsettur 5. desember 2017.

Fundi slitið - kl. 12:15.