Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

202. fundur 20. janúar 2012 kl. 10:00 - 12:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Sigríður María Hammer
  • Ólafur Jónsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson varaáheyrnarfulltrúi
  • Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Naustaskóli II. áfangi - nýbygging

Málsnúmer 2010090010Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboð sem bárust í innanhússfrágang í kennslu- og verkgreinaálmu.
Eftirfarandi þrjú tilboð bárust í verkið:

SS Byggir ehf - 122.281.711 - 85,3%
Hyrna ehf - 124.703.059 - 87,0%
ÍAV - 148.123.422 - 103,3%

Einnig rætt um framkvæmdatíma miðjurýmis skólans.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að taka upp viðræður við lægstbjóðanda SS Byggi ehf á grundvelli tilboðs og felur framkvæmdastjóra að skoða nánar framkvæmdatíma miðjurýmisins.

2.Fjárhagsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2013-2015

Málsnúmer 2012010238Vakta málsnúmer

Rætt um þriggja ára nýframkvæmdaáætlun.

3.Kaup eigna af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 2011120034Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun bæjarráðs frá 15. desember 2011 um kaup 4 fasteigna af Jöfnunarsjóðnum, Dvergagil 3, Geislatún 1, Hafnarstræti 16 og Snægil 1.

4.Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - 10 skýrslur og kynningar

Málsnúmer 2011080041Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 6.

5.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - SS Byggir: 11.- 13. verkfundur dags. 8. og 22. desember 2011 og 5. janúar 2012.
Naustaskóli II. áfangi - Uppsteypa SS Byggir: 13.- 15. verkfundur dags. 13. desember 2011, 5. og 17. janúar 2012.
Þrastarlundur 3-5 viðbygging - Virkni ehf: 4. og 5. verkfundur dags. 13. desember 2011 og 17. janúar 2012.
Kaffihús í Lystigarðinum - BB Byggingar: 1. verkfundur dags. 20. desember 2011.

6.Lystigarðurinn á Akureyri - 100 ára afmælisárið

Málsnúmer 2012010239Vakta málsnúmer

Rætt um mögulegar endurbætur í garðinum.
Helgi Már Pálsson, Tómas Björn Hauksson og Jón Birgir Gunnlaugsson starfsmenn framkvæmdadeildar sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 12:00.