Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

178. fundur 19. nóvember 2010 kl. 08:15 - 09:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Kristín Sigurðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.Hjúkrunarheimili Vestursíðu

Málsnúmer 2010050065Vakta málsnúmer

Lagðir fram hönnunarsamningar vegna burðarþols, lagna og rafmagns fyrir hjúkrunarheimili Vestursíðu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samningana fyrir sitt leyti.

2.Ófyrirséð viðhald - útboð 2010

Málsnúmer 2010110081Vakta málsnúmer

Rætt um fyrirhugað útboð á ófyrirséðu viðhaldi fyrir árin 2011-2012.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að fara í verðkönnun meðal verktaka á Akureyri.

3.Efniskaup Fasteigna Akureyrarbæjar - útboð 2010

Málsnúmer 2010110082Vakta málsnúmer

Rætt um fyrirhugað útboð á efniskaupum fyrir árin 2011-2012.

4.Brunaviðvörunarkerfi Fasteigna Akureyrarbæjar þjónustusamningar - útboð 2010.

Málsnúmer 2010110083Vakta málsnúmer

Rætt um fyrirhugað útboð á þjónustu við brunaviðvörunarkerfi.

5.Menningarhúsið Hof - lúkning framkvæmda

Málsnúmer 2008070068Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar ýmis viðbótarverk í Hofi.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir þau viðbótarverk sem lögð voru fram.

6.Verkfundargerðir FA 2010

Málsnúmer 2010010174Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram til kynningar:
9. fundur verkefnisliðs hjúkrunarheimilis dags. 16. nóvember 2010.

Fundi slitið - kl. 09:40.