Hjúkrunarheimili Naustahverfi

Málsnúmer 2010050065

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 171. fundur - 09.07.2010

Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið hjúkrunarheimilisins.

Stjórnin tilnefnir Sigríði Maríu Hammer sem fulltrúa sinn í verkefnisliðið og óskar jafnframt eftir að félagsmálaráð tilnefni einn fulltrúa.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 171. fundur - 09.07.2010

Lagður fram hönnunarsamningur við AVH ehf.

Stjórnin samþykkir að gengið verði til samninga við AVH ehf.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 172. fundur - 20.08.2010

Lagðar fram til kynningar tillögur að grunnmynd.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 173. fundur - 03.09.2010

Farið yfir stöðu mála varðandi staðsetningu hjúkrunarheimilisins.

Félagsmálaráð - 1107. fundur - 08.09.2010

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskaði á fundi sínum 9. júlí sl. eftir að félagsmálaráð tilnefni fulltrúa sinn í verkefnislið vegna byggingar hjúkrunarheimilis í Naustahverfi.

Félagsmálaráð samþykkir að Dagur Fannar Dagsson verði fulltrúi ráðsins í verkefnisliðinu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 174. fundur - 17.09.2010

Formaður kynnti niðurstöður bæjarráðs um byggingu hjúkrunarheimilis við Vestursíðu.
Á fundi sínum 9. júlí sl. óskaði stjórn FA eftir tilnefningu félagsmálaráðs í verkefnislið vegna byggingar hjúkrunarheimilis.
Félagsmálaráð hefur á fundi sínum 8. september 2010 tilnefnt Dag Fannar Dagsson sem fulltrúa sinn í verkefnisliðinu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 178. fundur - 19.11.2010

Lagðir fram hönnunarsamningar vegna burðarþols, lagna og rafmagns fyrir hjúkrunarheimili Vestursíðu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samningana fyrir sitt leyti.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 1. fundur - 07.02.2011

Teknar fyrir teikningar af hjúkrunarheimili við Vestursíðu.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra gerir ekki athugasemdir við teikningarnar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 183. fundur - 18.02.2011

Farið yfir stöðu mála varðandi framkvæmdina.

Félagsmálaráð - 1121. fundur - 13.04.2011

Fanney Hauksdóttir arkitekt kynnti teikningar á nýju hjúkrunarheimili við Vestursíðu.
Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA og Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA sátu fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju með hönnunina og þykir vel hafa tekist til.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 189. fundur - 27.05.2011

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 2 fyrir framkvæmdina.