Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

286. fundur 24. október 2016 kl. 09:30 - 11:10 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Jón Orri Guðjónsson D-lista mætti í forföllum Njáls Trausta Friðbertssonar.
Eiríkur Jónsson S-lista mætti í forföllum Helenu Þuríðar Karlsdóttur.

1.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis

Málsnúmer 2014020207Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 23. október 2016 ásamt verksamningum vegna verksins.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir framlagða samninga og felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu.

2.Þórssvæði - slys í áhorfendastúku

Málsnúmer 2014110171Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar dómur Héraðsdóms Reykjavíkur dagsettur 17. október 2016 í máli Harjit Delay gegn Fasteignum Akureyrarbæjar vegna falls hans úr stúku á Þórsvellinum 14. september 2014.

Fasteignir Akureyrarbæjar eru sýknaðar af kröfum stefnanda.
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti á fundinn kl. 10:00 við upphaf 3ja dagskrárliðar.

3.Fjárhagsáætlun 2017 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2016080126Vakta málsnúmer

Unnið áfram að nýframkvæmdaáætlun áranna 2017-2019 hjá Fasteignum Akureyrarbæjar.

4.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða dómnefndar dagsett 21. október 2016 um hönnunartillögur af Nökkvasvæðinu.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir niðurstöður dómnefndar að velja tillögu AVH ehf til frekari útfærslu og vísar málinu til umræðu í íþróttaráði.

Eiríkur Jónsson S-lista og Jón Orri Guðjónsson D-lista sátu hjá við atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:10.