Stjórn Akureyrarstofu

153. fundur 09. janúar 2014 kl. 16:00 - 19:15 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson áheyrnarfulltrúi
  • Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Gásakaupstaður ses - staða verkefna

Málsnúmer 2013030037Vakta málsnúmer

Kristín Sóley Björnsdóttir verkefnisstjóri Gásaverkefnisins kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu verkefna hjá Gásakaupstað ses.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Kristínu Sóleyju fyrir komuna á fundinn, gagnlegar upplýsingar og góðar umræður.

2.Verkefnisstjórn um mótun atvinnustefnu

Málsnúmer 2011110167Vakta málsnúmer

Fjallað var sérstaklega um kafla um hlutverk sveitarfélagsins í atvinnustefnunni, hvernig það er afmarkað og hvað leiðir af þeirri afmörkun.
Hreinn Þór Hauksson verkefnisstjóri atvinnumála á Akureyrarstofu sat fundinn undir þessum lið.

3.Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar 2013-2018

Málsnúmer 2011020012Vakta málsnúmer

Farið yfir fyrirliggjandi drög að menningarstefnunni og breytingartillögur við hana. Stefnan verður tekin til endanlegrar afgreiðslu á næsta fundi stjórnarinnar.

4.Aukin samvinna menningarstofnana - viðræður Leikfélags Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Málsnúmer 2012090021Vakta málsnúmer

Skipun tveggja fulltrúa sem munu vinna með og aðstoða undirbúningsstjórn nýs félags sem hefur það að markmiði að taka að sér verkefni Leikfélagsins, Menningarfélagsins og Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Karl Frímannsson þróunarstjóra Akureyrarbæjar og Þórgný Dýrfjörð framkvæmdastjóra Akureyrarstofu til að starfa með undirbúningsstjórninni.

5.Stjórn Akureyrarstofu - fundaáætlun

Málsnúmer 2013040224Vakta málsnúmer

Lögð fram fundaáætlun fyrir stjórn Akureyrarstofu til vors 2014.

Fundi slitið - kl. 19:15.