Stjórn Akureyrarstofu

94. fundur 31. mars 2011 kl. 16:00 - 19:00 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Guðrún Þórsdóttir
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Menningarfélagið Hof ses - ósk um endurnýjun samstarfssamnings félagsins og Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2011030188Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf ódags. frá Karli Frímannssyni f.h. Menningarfélagsins Hofs ses þar sem óskað er eftir viðræðum um endurnýjun samnings Akureyrarbæjar og félagsins um rekstur Hofs, en samningurinn rennur út í lok ársins 2011.

Stjórn Akureyrarstofu tekur jákvætt í erindið og samþykkir að fela framkvæmdastjóra að hefja viðræður við félagið.

2.Akureyrarstofa - fyrirtækjaheimsóknir 2011

Málsnúmer 2011030189Vakta málsnúmer

Sævar Pétursson verkefnisstjóri atvinnumála mætti á fundinn undir þessum lið og greindi frá verkefnum sínum á fyrstu mánuðum í starfi. Fór hann sérstaklega yfir heimsóknir í fyrirtæki á Akureyri og hvaða ályktanir má draga af þeim upplýsingum sem fram hafa komið.
Þá ræddi stjórnin um næstu skref.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista og Matthías Rögnvaldsson A-lista mættu sem gestir undir þessum lið.

Sóley Björk Stefánsdóttir vék af fundi kl. 16:55.
Guðrún Þórsdóttir kom á fund stjórnarinnar í stað Sóleyjar kl. 17:15.

3.Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2011-2014

Málsnúmer 2011010071Vakta málsnúmer

Áfram haldið vinnu við starfsáætlun og stefnt að því að ljúka henni á næsta fundi stjórnar.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista og Matthías Rögnvaldsson A-lista mættu sem gestir undir þessum lið.

4.Spurningaþátturinn Útsvar á Akureyri

Málsnúmer 2011030192Vakta málsnúmer

Spurningaþátturinn Útsvar verður haldinn í Hofi föstudagskvöldið 1. apríl nk.

Stjórn Akureyrarstofu fagnar sérstaklega ákvörðun RÚV um að sýna úrslitakeppni Útsvars í beinni útsendingu frá Hofi.

Einnig þakkar stjórnin Íslenska dansflokknum, starfsmönnum Hofs og öðrum þeim aðilum sem gerðu þetta mögulegt.

Fundi slitið - kl. 19:00.