Stjórn Akureyrarstofu

325. fundur 12. október 2021 kl. 12:00 - 14:40 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
  • Sumarliði Guðmar Helgason
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson D-lista mætti í forföllum Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.

1.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2022

Málsnúmer 2021060306Vakta málsnúmer

Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu lögð fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu vísar gjaldskrártillögum til bæjarráðs.

2.Samningur við MAk 2021 - 2023

Málsnúmer 2021051151Vakta málsnúmer

Samningur við MAk lagður fram til samþykktar.

Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn með þeim breytingum sem voru ræddar á fundinum og vísar honum til bæjarráðs og bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.

3.Akureyri - menningarhöfuðborg Evrópu

Málsnúmer 2021060508Vakta málsnúmer

Á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 9. júní sl. var kynnt hugmyndin um Akureyri sem menningarhöfuðborg Evrópu og var starfsfólki falið að kanna fýsileika þess að hefja undirbúning að því.

Lagt fram minnisblað forstöðumanns Akureyrarstofu.

Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu telur ekki tímabært að fara af stað með þetta verkefni.


Sumarliði Guðmar Helgason vék af fundi kl. 14:00.

4.Samkeppnishæfni Akureyrarbæjar gagnvart öðrum sveitarfélögum á atvinnumarkaði

Málsnúmer 2018110163Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samkeppnisgreiningu sem unnin hefur verið í samvinnu við SSNE.

Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir ánægju með framkomin drög og felur starfsmönnum að vinna þau áfram. Málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.

5.Menningarstefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2021080724Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að endurnýja menningarstefnu Akureyrarbæjar. Umræða um fyrirkomulag vinnunar við gerð nýrrar stefnu.

6.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2021

Málsnúmer 2021050090Vakta málsnúmer

Átta mánaða rekstraryfirlit lagt fram til kynningar.

7.Samfélagssvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2018110172Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.

8.Minjasafnið á Akureyri - fundargerðir stjórnar

9.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2021

10.Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir

Málsnúmer 2020040527Vakta málsnúmer

Fundargerð stjórnar MN frá 28. september 2021 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:40.