Stjórn Akureyrarstofu

322. fundur 19. ágúst 2021 kl. 14:00 - 16:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá

1.Menningarstefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2021080724Vakta málsnúmer

Til umræðu endurskoðun á Menningarstefnu Akureyrarbæjar.

Elsa María Guðmundsdóttir mætti á fundinn og gerði grein fyrir meistaraverkefni sínu sem hún gerði um menningarstefnu bæjarins.



Stjórn Akureyrarstofu þakkar Elsu Maríu fyrir góða kynningu.

2.Hátíðarhöld á vegum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2020060901Vakta málsnúmer

Til umræðu aðkoma Akureyrarbæjar að hátíðum.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að taka saman lista yfir hátíðir og með hvaða hætti aðkoma Akureyrarbæjar er að þeim.

3.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021

Málsnúmer 2020060900Vakta málsnúmer

Til umræðu starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu m.t.t. væntanlegra stjórnsýslubreytinga.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir vék af fundi kl. 15:22.

4.Samfélagssvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2018110172Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.

5.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2021

Málsnúmer 2021050090Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar 6 mánaða yfirlit 2021.

Fundi slitið - kl. 16:00.