Stjórn Akureyrarstofu

202. fundur 20. janúar 2016 kl. 16:15 - 18:15 Fundarherbergi Kaupvangsstræti 6
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Mótun upplýsingastefnu Akureyrarbæjar - 2015

Málsnúmer 2015110167Vakta málsnúmer

Framhald umræðu um mótun upplýsingastefnu fyrir Akureyrarbæ. Lögð fram hugmynd að ramma fyrir slíka stefnu. Vinnuhópur um íbúalýðræði og gagnsæa stjórnsýslu, sem er að störfum, mun í sínum tillögum jafnframt leggja áherslu á að sett verði upplýsingastefna fyrir bæjarkerfið sem heild.
Stjórn Akureyrarstofu leggur til við bæjarráð að skipaður verði vinnuhópur um mótun upplýsingastefnu fyrir Akureyrarbæ sem heild og að vinnan verði leidd af Akureyrarstofu í samvinnu við skrifstofu Ráðhúss.

2.NOVU 2016 - norrænt vinabæjamót ungmenna í júní á Akureyri

Málsnúmer 2016010136Vakta málsnúmer

Norrænt vinabæjamót ungmenna frá vinabæjum Akureyrar á Norðurlöndunum fer fram á Akureyri þann 26. júní til 2. júlí nk.

Framkvæmdastjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir þeim undirbúningi sem þegar hefur farið fram og þeim verkefnum sem framundan eru.

3.Starfslaun listamanna 2016 - Menningarsjóður

Málsnúmer 2016010025Vakta málsnúmer

Undirbúningur vegna veitingu starfslauna listamanna árið 2016 er hafinn. Mynda þarf ráðgjafahóp stjórnarinnar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir því að Ingibjörg Sigurðardóttir, Jón Hlöðver Áskelsson og Rósa Kristín Júlíusdóttir taki sæti í ráðgjafahópnum.

Fundi slitið - kl. 18:15.