Stjórn Akureyrarstofu

201. fundur 07. janúar 2016 kl. 16:15 - 18:10 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá
Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista mætti ekki og ekki varamaður í hennar stað.

1.Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál - endurnýjun 2016

Málsnúmer 2016010050Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar og umræðu drög að nýjum samstarfssamningi.

2.Menningarfélag Akureyrar

Málsnúmer 2014090088Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 9. desember 2015 frá stjórn Menningarfélagsins, þar sem óskað er eftir heimild til kaupa á myndvarpa fyrir Hamraborg, stærri sal Hofs. Myndvarpinn sem fyrir er fylgdi húsinu við opnun en er nú úr sér genginn.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrir sitt leyti að farið verði í kaup á myndvarpanum á þeim forsendum sem kynntar eru í erindinu. Jafnframt að kostnaður vegna þeirra bætist við lausafjárleigu Hofs.

3.Umsókn um styrk vegna Þrettándagleði

Málsnúmer 2015120224Vakta málsnúmer

Erindi ódagsett frá Eiði Arnari Pálmasyni, f.h. Íþróttafélagsins Þórs, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 v/árlegrar Þrettándagleði félagsins.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 200.000 til verkefnisins.

Fundi slitið - kl. 18:10.