Samfélags- og mannréttindaráð

71. fundur 08. september 2010 kl. 16:30 - 18:00 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir samþykki fundarmanna fyrir því að tveimur málum yrði bætt á dagskrá og var það samþykkt.

1.Forvarnastefna - stofnun vinnuhóps

Málsnúmer 2007090104Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um stofnun vinnuhóps um endurskoðun forvarnastefnu Akureyrarbæjar.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir tillöguna og óskar eftir tilnefningum frá skóladeild, fjölskyldudeild, heilsugæslustöð og Íþróttabandalagi Akureyrar.

Hlín Bolladóttir og Guðlaug Kristinsdóttir verða fulltrúar samfélags- og mannréttindaráðs.

Forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála og umsjónarmaður forvarna munu starfa með hópnum.

Stefnt er að því að endurskoðun verði lokið fyrir áramót.

2.Félagsmiðstöðvar 2010

Málsnúmer 2010010090Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála í Naustaskóla, Hrísey og Grímsey.

Samfélags- og mannréttindaráð mun taka málið upp aftur í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.

3.Samfélags- og mannréttindadeild - rekstraryfirlit 2010

Málsnúmer 2009100036Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur málaflokka samfélags- og mannréttindadeildar fyrstu 6 mánuði ársins 2010.

4.Fjölmenningarmál - fyrirkomulag 2010

Málsnúmer 2010090015Vakta málsnúmer

Verkefnisstjóri fjölmenningarmála tók nýlega til starfa hjá samfélags- og mannréttindadeild. Í samræmi við fjölmenningarstefnu bæjarins er verkefnisstjórinn með aðsetur í Ráðhúsinu við Geislagötu. Helstu verkefni starfsmannsins eru innleiðing fjölmenningarstefnunnar og ráðgjöf til útlendinga.

5.Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar - Akureyri 2010

Málsnúmer 2010030175Vakta málsnúmer

Erindi dags. 16. ágúst 2010 frá Jónu Lovísu Jónsdóttur fh. stjórnar ÆSKÞ þar sem óskað er eftir styrk á móti húsaleigu. Stjórn Akureyrarstofu hefur á fundi sínum 19. ágúst sl. óskað eftir því að samfélags- og mannréttindaráð taki umsóknina til umfjöllunar m.t.t. niðurfellingar á húsaleigu í Rósenborg.

Samfélags- og mannréttindaráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundar kl. 17.15.

6.Samfélags- og mannréttindaráð - fundaáætlun 2010

Málsnúmer 2010060118Vakta málsnúmer

Vegna námskeiðs fyrir bæjarfulltrúa og nefndafólk er lögð fram tillaga um að finna nýjan fundartíma fyrir fræðslufund fyrir aðal- og varamenn í samfélags- og mannréttindaráði sem fyrirhugaður var 15. september nk. og nýjan tíma fyrir fund samfélags- og mannréttindaráðs sem fyrirhugaður var 22. september nk.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að fræðslufundur verði haldinn 27. september nk. og næsti fundur ráðsins 29. september nk.

7.Karlasmiðja - styrkbeiðni

Málsnúmer 2010010109Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni dags. 6. september 2010 frá Starfsendurhæfingu Norðurlands ehf um styrk að upphæð kr. 1.000.000 vegna tilraunaverkefnis um karlasmiðju fyrir langtíma atvinnulausa.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 800.000 til verkefnisins.

8.Unglingadansleikir

Málsnúmer 2007090104Vakta málsnúmer

Rætt um dansleiki sem haldnir eru á vegum ýmissa aðila fyrir unglinga á Akureyri.
Í tengslum við endurskoðun forvarnastefnu er fyrirhugað að setja reglur um ábyrgð og skyldur þeirra sem halda slíka dansleiki.
Fundi slitið.

Fundi slitið - kl. 18:00.