Samfélags- og mannréttindaráð

92. fundur 21. september 2011 kl. 16:45 - 18:45 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Unglingadansleikir

Málsnúmer 2011010099Vakta málsnúmer

Í mars sl. samþykkti bæjarstjórn reglur vegna umsagna bæjarlögmanns um leyfi til að standa fyrir unglingadansleikjum.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn mættu á fundinn til að ræða hvernig gengið hefur að framfylgja reglunum sem og hvernig eftirfylgni er háttað.
Reglurnar má nálgast á vefslóðinni http://www.akureyri.is/stjornkerfid/reglur-samthykktir/felagsmal/nr/16424

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar bæjarlögmanni og yfirlögregluþjóni fyrir góðar umræður. Fram kom á fundinum að vel hafi gengið að framfylgja reglunum og þær skilað sínum tilgangi. Ráðið hvetur skólastjórnendur og nemendafélög framhaldsskólanna til að kynna sér reglur bæjarins um unglingadansleiki og jafnframt að gera þá kröfu til skemmtikrafta á framhaldsskólaskemmtunum að þeir séu ekki undir áhrifum áfengis- og vímuefna.

Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundar kl. 16:55.

2.Áfengis- og vímuvarnir

Málsnúmer 2011040090Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar dagskrá að málþingi um forvarnamál sem haldið verður í Hofi fimmtudaginn 29. september nk. í samvinnu samfélags- og mannréttindadeildar og meðferðarheimilisins Laugalandi. Málþingið verður haldið í tengslum við tónleikana Í minningu Sissu.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar forvarnafulltrúa og forsvarsmönnum Laugalands fyrir góða vinnu við skipulagningu málþingsins.

3.Aðgerðaáætlun forvarnastefnu 2011-2013

Málsnúmer 2011090007Vakta málsnúmer

Aðgerðaáætlun forvarnastefnu fyrir 2011-2013 lögð fram til samþykktar.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir áætlunina en hefði gjarnan viljað sjá inni í henni verkefni tengd leikskólunum.

4.Fjárhagsáætlun 2011 - samfélags- og mannréttindaráð

Málsnúmer 2010090135Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit janúar til ágúst 2011 fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindadeild.

5.Fjárhagsáætlun 2012 - samfélags- og mannréttindadeild

Málsnúmer 2011090010Vakta málsnúmer

Fjárhagsrammi fyrir árið 2012 lagður fram til kynningar.

6.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar frá 2. september 2011.

Fundi slitið - kl. 18:45.