Samfélags- og mannréttindaráð

75. fundur 27. október 2010 kl. 16:30 - 18:00 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Lýðræði og mannréttindi í leik og starfi

Málsnúmer 2009120057Vakta málsnúmer

Pétur B. Þorsteinsson æskulýðsþjálfari kynnti Kompás - Handbók um mannréttindi fyrir ungt fólk. Bókina má nálgast á http://www.nams.is/kompas/

Samfélags- og mannréttindaráð telur það heillaskref að komið sé kennsluefni um mannréttindi á íslensku t.d. þar sem eitt af markmiðum námskrár grunnskóla er þekking á mannréttindum.

2.Vinnuskóli - hugmyndir um tilfærslu innan kerfis

Málsnúmer 2009010148Vakta málsnúmer

Framhald umræðu um mögulegan flutning Vinnuskólans frá framkvæmdadeild til samfélags- og mannréttindadeildar.

Samfélags- og mannréttindaráð gerir að tillögu sinni að Vinnuskólinn verði færður frá framkvæmdadeild til samfélags- og mannréttindadeildar í þeim tilgangi að flétta betur saman starf félagsmiðstöðva og Vinnuskólans, fyrst og fremst með forvarnagildi og samnýtingu starfsfólks í huga. Breytingin myndi ekki hafa í för með sér að unglingar yrðu teknir úr hefðbundnum útiverkum við fegrun bæjarins.

3.Ungmennaráð

Málsnúmer 2007080057Vakta málsnúmer

Rætt um ungmennaráð Akureyrarbæjar sem stofnað var sl. vor, hlutverk þess og samskipti við samfélags- og mannréttindaráð.

Samfélags- og mannréttindaráð lýsir ánægju sinni með að ungmennaráð hafi tekið til starfa og væntir mikils af ungu fólki á Akureyri. Ráðið hvetur aðrar nefndir bæjarins til að taka virkan þátt í uppbyggingu ungmennaráðsins.

4.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa

Málsnúmer 2009090017Vakta málsnúmer

Stjórnsýslunefnd hefur óskað eftir því að fastanefndir hjá Akureyrarbæ taki til skoðunar drög að Siðareglum fyrir kjörna fulltrúa og skili athugasemdum fyrir 15. nóvember nk.

Samfélags- og mannréttindaráð gerir ekki athugasemdir við drögin og samþykkir þau fyrir sitt leyti.

5.Félags- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga - ábyrgð aðila

Málsnúmer 2010100104Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar álitisgerðin Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Ritið er gefið út á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og Æskulýðsráðs. Álitsgerðina má lesa á http://onecrmsql/actions/DisplayAttachment.aspx?id=18634230166299248854

Samfélags- og mannréttindaráð fagnar álitsgerðinni og hvetur íþróttaráð til að taka hana einnig til umfjöllunar.

6.Samnorræn skýrsla um réttarvitund barna

Málsnúmer 2010100109Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samnorræn skýrsla um réttarvitund barna. Rannsóknin var framkvæmd í tilefni 20 ára afmælis barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að á meðal norrænna barna telja íslensk og dönsk börn sig vita minnst um réttindi sín. Skýrsluna má finna á
http://unicef.is/utgefid_efni_norraenskyrsla

Samfélags- og mannréttindaráð lýsir áhyggjum sínum af því að íslensk börn séu ekki betur upplýst um eigin réttindi og skyldur og hvetur alla fullorðna til að sýna þá ábyrgð að kynna sér málið.

Fundi slitið - kl. 18:00.