Öldungaráð

28. fundur 12. apríl 2023 kl. 13:00 - 14:45 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
  • Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi hsn
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
  • Halla Birgisdóttir Ottesen forstöðumaður tómstundamála
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá
Brynjólfur Ingvarsson F-lista komst ekki til fundarins né varamaður hans.

1.Kynning frá öldrunarsálfræðingi

Málsnúmer 2023040232Vakta málsnúmer

Líney Úlfarsdóttir öldrunarsálfræðingur hjá HSN kom á fundinn og fjallaði um málefni eldra fólks og sagði frá störfum sínum.
Öldungaráð þakkar Líneyju fyrir kynninguna og fagnar því að fá öldrunarsálfræðing til starfa á Akureyri.

2.Staðan á húsnæðismálum á Hjúkrunarheimilinu Hlíð

Málsnúmer 2023040348Vakta málsnúmer

Þóra Sif Sigurðardóttir framkvæmdarstjóri hjúkrunar kynnti stöðuna á Hlíð vegna lokunar hjúkrunarrýma og stöðu á biðlistum í dagvistun og í hvíldarinnlagnir.
Öldungaráð þakkar Þóru fyrir kynninguna.

Öldungaráð ítrekar bókun sína frá síðasta fundi ráðsins og lýsir yfir miklum áhyggjum af málefnum Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hlíðar og hvetur alla hlutaðeigandi aðila til að leysa málin sem fyrst.

3.Starfsáætlun öldungaráðs 2023

Málsnúmer 2022120098Vakta málsnúmer

Umfjöllun og kynning á starfsáætlun öldungaráðs.

Fundi slitið - kl. 14:45.