Öldungaráð

3. fundur 14. mars 2016 kl. 14:00 - 15:55 Rósenborg - fundarherbergi samfélagssviðs 2. hæð (austur)
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Sigurður Hermannsson varaformaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halldór Gunnarsson
  • Arnheiður Kristinsdóttir
Starfsmenn
  • Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá
Arnheiður Kristinsdóttir sat fundinn í forföllum Önnu G. Thorarensen

1.Félagsstarf og starfsemi félagsmiðstöðva

Málsnúmer 2019020301Vakta málsnúmer

Í forföllum Bergljótar Jónasdóttur forstöðumanns tómstundamála, kynnti Sigríður Stefánsdóttir stuttlega félagsstarf fyrir eldri borgara á vegum Akureyrarbæjar.

2.Samningur Akureyrarbæjar við félag eldri borgara á Akureyri

Málsnúmer 2008010206Vakta málsnúmer

Fyrri samningur rann út um sl. áramót, eftir að Akureyrarbær sagði honum upp með 6 mánaða fyrirvara. Viðræður um nýjan samning standa yfir og fulltrúar samfélags- og mannréttindaráðs hafa lagt fram grundvallarforsendur og hugmyndir um innihald.
Með bréfi dagsett 2. mars sl. óskaði Félag eldri borgara eftir að öldungaráð fjallaði um málið. Bréf félags eldri borgara fylgdi fundarboði.



Öldungarráð Akureyrarkaupstaðar leggur áherslu á að áfram verði rekið öflugt félagsstarf eldri borgara í tveimur félagsmiðstöðvum.



Öldungaráðið hvetur til þess að áfram verði leitað samkomulags Akureyrarbæjar og Félags eldri borgara um fyrirkomulag og rekstur félagsmiðstöðvanna, þar sem áhersla verði lögð á valdeflingu, þ.e. að félagar hafi sem mest um þá þjónustu að segja sem þeir njóta.

Fundi slitið - kl. 15:55.