Tímabundin heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga v. neyðarstigs almannavarna

Málsnúmer 2020030426

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3471. fundur - 20.03.2020

Þriðjudaginn 17. febrúar 2020 samþykkti Alþingi breytingar á sveitarstjórnarlögum sem ætlað er að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar. Breytingarnar kveða á um að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við neyðarástand og til að auðvelda ákvarðanatöku. Þetta er gert til að bregðast við aðstæðum sem hafa skapast vegna COVID-19 faraldurs. Í greinargerð með frumvarpi til laganna segir að rétt þyki að rýmka reglur um fjarfundi til að bregðast við tilmælum yfirvalda um sóttvarnir, án þess að það torveldi ákvarðanatöku innan stjórnkerfis sveitarfélaga. Auglýsing um ákvörðun ráðherra var birt í B-deild Stjórnartíðinda 19. mars 2020.

Lög um breytingu á sveitarstjórnarlögum er að finna á vefsíðu Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/1147.html

Auglýsingu um ákvörðun ráðherra er að finna á vefsíðu Stjórnartíðinda: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=f4cb3242-2fd9-4fa1-b70d-c1de5acee8f1

Lögð fram tillaga að tímabundinni heimild til breytinga á fyrirkomulagi funda bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar meðan neyðarstig almannavarna er í gildi.
Bæjarstjórn samþykkir, með 11 samhljóða atkvæðum, til að tryggja starfhæfi sitt og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn Akureyrarbæjar, að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að ritun fundargerða fari fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð skal annað hvort deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan staðfest með tölvupósti eða undirrituð rafrænt.

Bæjarráð - 3690. fundur - 02.07.2020

Bæjarstjórn samþykkti 20. mars sl. tímabundna heimild til að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk yrðu á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Ákvörðun bæjarstjórnar gilti meðan neyðarstig almannavarna varði.

Ákvörðun bæjarstjórnar byggði á nýgerðum breytingum á sveitarstjórnarlögum og auglýsingu ráðherra sem ætlað var að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar þrátt fyrir. Breytingarnar kveða á um að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við neyðarástand og til að auðvelda ákvarðanatöku. Þetta var gert til að bregðast við aðstæðum sem sköpuðust vegna COVID-19 faraldurs.

Lög um breytingu á sveitarstjórnarlögum er að finna á vefsíðu Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/1147.html

Auglýsingu um ákvörðun ráðherra er að finna á vefsíðu Stjórnartíðinda: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=f4cb3242-2fd9-4fa1-b70d-c1de5acee8f1

Lögð fram tillaga um að tímabundin heimild til breytinga á fyrirkomulagi funda bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar gildi til 19. júlí 2020 eins og auglýsing ráðherra veitir heimild til.
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í júlí og ágúst 2020 sbr. bókun í 8. lið fundargerðar bæjarstjórnar 16. júní sl.

Bæjarráð samþykkir að framlengja ákvörðun bæjarstjórnar frá 20. mars sl. um að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til 19. júlí 2020.
Ásthildur Sturludóttir og Halla Björk Reynisdóttir mættu til fundar kl. 08:18.

Bæjarráð - 3692. fundur - 13.08.2020

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi vegna COVID-19.

Auglýsingu um ákvörðun ráðherra er að finna á vefsíðu Stjórnartíðinda: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=df0dcb44-235c-40db-aa0a-89967cfd0406
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í júlí og ágúst 2020 sbr. bókun í 8. lið fundargerðar bæjarstjórnar 16. júní sl.

Bæjarráð samþykkir að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarráð að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til 10. nóvember 2020.

Bæjarstjórn - 3483. fundur - 10.11.2020

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur framlengt tímabundna heimild sveitarstjórna til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi vegna COVID-19. Fyrri heimild gilti til 10. nóvember 2020. Framlengd heimild gildir til 10. mars 2021.

Auglýsingu um ákvörðun ráðherra er að finna á vefsíðu Stjórnartíðinda: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=239299c5-969f-4232-a504-a59615737d8e
Bæjarstjórn samþykkir að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til 10. mars 2021.

Bæjarstjórn - 3491. fundur - 16.03.2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur framlengt tímabundna heimild sveitarstjórna til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi vegna COVID-19. Fyrri heimild gilti til 10. mars 2021. Framlengd heimild gildir til aprílloka 2021.

Auglýsingu um ákvörðun ráðherra er að finna á vefsíðu Stjórnartíðinda: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=f84d5cd0-030b-4397-86e7-4754c5e6fae3

Halla Björk Reynisdóttir kynnti tillögu að bókun.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til aprílloka 2021.

Bæjarstjórn - 3492. fundur - 20.04.2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur framlengt tímabundna heimild sveitarstjórna til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi vegna COVID-19. Fyrri heimild gilti til aprílloka 2021. Framlengd heimild gildir til 31. júlí 2021.

Auglýsingu um ákvörðun ráðherra er að finna á vefsíðu Stjórnartíðinda: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=2c3ecd9f-ca9f-4404-9317-246f9084aa33

Halla Björk Reynisdóttir kynnti tillögu að bókun. Auk hennar tók Hilda Jana Gísladóttir til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til 31. júlí 2021.

Þá hvetur bæjarstjórn Akureyrarbæjar ríkisvaldið til þess að veita sveitarstjórnum varanlega heimild til fjarfunda og að þeim verði í sjálfsvald sett hvort að þær velji að nýta þá heimild.

Bæjarráð - 3734. fundur - 12.08.2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur framlengt tímabundna heimild sveitarstjórna til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi vegna COVID-19. Fyrri heimild gilti til júlíloka 2021. Framlengd heimild gildir til 1. október 2021.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í júlí og ágúst 2021 sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 15. júní sl.

Bæjarráð samþykkir með 4 samhljóða atkvæðum að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarráð að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til 1. október 2021.