Bæjarráð

3734. fundur 12. ágúst 2021 kl. 08:15 - 09:07 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Halla Björk Reynisdóttir L-lista og varamaður hennar boðuðu forföll.

1.Tímabundin heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga v. almannavarnaástands

Málsnúmer 2020030426Vakta málsnúmer

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur framlengt tímabundna heimild sveitarstjórna til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi vegna COVID-19. Fyrri heimild gilti til júlíloka 2021. Framlengd heimild gildir til 1. október 2021.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í júlí og ágúst 2021 sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 15. júní sl.

Bæjarráð samþykkir með 4 samhljóða atkvæðum að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarráð að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til 1. október 2021.

2.Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir

Málsnúmer 2018110047Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 263. fundar stjórnar Norðurorku hf. dagsett 30. júní 2021.

Fundi slitið - kl. 09:07.