Heiðartún 5 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2019010046

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 307. fundur - 16.01.2019

Erindi dagsett 4. janúar 2019 þar sem Björn Ómar Sigurðsson sækir um lóð nr. 5 við Heiðartún. Meðfylgjandi er yfirlýsing viðskiptabanka.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Skipulagsráð - 325. fundur - 30.10.2019

Erindi dagsett 11. október 2019 þar sem Björn Ómar Sigurðsson sækir um framkvæmdarfrest á lóð nr. 5 við Heiðartún til 15. maí 2020. Framkvæmdarfresturinn rann út 10. október sl.
Samþykkt að veita frest til framkvæmda á lóðinni til 15. maí 2020.

Skipulagsráð - 347. fundur - 11.11.2020

Erindi dagsett 28. október 2020 þar sem Björn Ómar Sigurðsson sækir um framkvæmdafrest á lóðinni nr. 5 við Heiðartún. Meðfylgjandi er rökstuðningur í tölvupósti.
Skipulagsráð samþykkir að veita framkvæmdafrest í samræmi við fyrirliggjandi beiðni til 31. maí 2021.