Kjarasamninganefnd

5. fundur 07. apríl 2017 kl. 11:00 - 12:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Fræðslusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030171Vakta málsnúmer

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti fræðslusviðs sem samþykkt var á fundi fræðsluráðs 23. mars 2017.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns rekstrardeildar og starf forstöðumanns þjónustu á fræðslusviði.

2.Búsetusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030128Vakta málsnúmer

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti búsetusviðs sem samþykkt var á fundi velferðarráðs 15. mars 2017.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns stoðþjónustu á búsetusviði.

3.Fjölskyldusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030129Vakta málsnúmer

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs sem samþykkt var á fundi velferðarráðs 15. mars 2017.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns þjónustudeildar á fjölskyldusviði.

Kjarasamninganefnd felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að vinna að myndrænni framsetningu skipurita allra sviða.

4.Sumarvinna skólafólks 17 - 25 ára

Málsnúmer 2017030542Vakta málsnúmer

Umfjöllun um átaksverkefni sumarið 2017 fyrir skólafólk á aldrinum 17 - 25 ára.
Kjarasamninganefnd felur frístundaráði að endurskoða fyrirkomulag átaksverkefna fyrir sumarvinnu 17 - 25 ára skólafólks og leggja tillögu fyrir bæjarráð eigi síðar en 14. september nk.

5.Viðaukar - reglur

Málsnúmer 2017020133Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs þann 16. mars 2017 var samþykkt tillaga að reglum um gerð og meðferð viðauka við fjárhagsáætlun. Bæjarráð óskar eftir að reglurnar verði kynntar í öllum ráðum og stjórnum bæjarins.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.