Jaðarstún 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014110080

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 518. fundur - 20.11.2014

Erindi dagsett 11. nóvember 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni-eignarhaldsfélags ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 2. við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 523. fundur - 08.01.2015

Erindi dagsett 11. nóvember 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni-eignarhaldsfélags ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 2. við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 18. desember 2014.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 529. fundur - 26.02.2015

Erindi dagsett 11. nóvember 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 2. við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 18. desember 2014 og 19. febrúar 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Skipulagsnefnd - 199. fundur - 11.03.2015

Skipulagsstjóri lagði fram eftirfarandi umsókn um byggingarleyfi til umsagnar skipulagsnefndar þar sem óskað er eftir breytingu á formi og útliti hússins.

Erindi dagsett 11. nóvember 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu á lóð nr. 2. við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 18. desember 2014 og 19. febrúar 2015.
Skipulagsnefnd hefur yfirfarið fyrirliggjandi útlitsuppdrætti og gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við erindið er varðar form og útlit hússins.

Skipulagsstjóra er falið að afgreiða umsókn um byggingarleyfi.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 538. fundur - 30.04.2015

Erindi dagsett 11. nóvember 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 2. við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 28. apríl 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið með fyrirvara um endurskoðun á útfærslu einangrunar hússins.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 541. fundur - 22.05.2015

Þann 11. maí 2015 lagði Sigurgeir Arngrímsson f.h. Virkni-eignarhaldsfélags ehf., kt. 520809-0580, fram teikningar þar sem óskað er eftir breytingu á áður samþykktri teikningu af húsi á lóðinni nr. 2 við Jaðarstún.

Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.