Daggarlundur 11 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090246

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 511. fundur - 02.10.2014

Erindi dagsett 22. september 2014 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 11 við Daggarlund. Einnig er sótt um leyfi til jarðvegsskipta á grundvelli fyrirliggjandi teikninga.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 512. fundur - 09.10.2014

Erindi dagsett 22. september 2014 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 11 við Daggarlund. Einnig er sótt um leyfi til jarðvegsskipta á grundvelli fyrirliggjandi teikninga.
Innkomnar teikningar 6. október 2014.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 524. fundur - 15.01.2015

Erindi dagsett 9. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Daggarlundi 11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 525. fundur - 22.01.2015

Erindi dagsett 9. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Daggarlundi 11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 19. janúar 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 577. fundur - 10.03.2016

Erindi dagsett 8. mars 2016 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 11 við Daggarlund.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 675. fundur - 26.04.2018

Erindi dagsett 16. apríl 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Friðgeirs Valdimarssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 11 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Byggingarfulltrúi hafnar breytingum á gangi þar sem breytingin uppfyllir ekki ákvæði byggingarreglugerðar um algilda hönnun, en frestar erindinu að öðru leyti með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 678. fundur - 17.05.2018

Erindi dagsett 16. apríl 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Friðgeirs Valdimarssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 11 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 7. maí 2018.
Byggingarfulltrúi hafnar breytingum á gangi þar sem breytingin uppfyllir ekki ákvæði byggingarreglugerðar um algilda hönnun, eftir breytingu sem gerð var á henni 2. maí 2016.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 691. fundur - 06.09.2018

Erindi dagsett 5. september 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Friðgeirs Valdimarssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 11 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.