Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

525. fundur 22. janúar 2015 kl. 13:00 - 14:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Norðurtangi 7 - afsögn lóðar

Málsnúmer 2011030080Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. janúar 2015 þar sem Kristinn Hreinsson f.h. Rafeyrar ehf., kt. 430594-2229, segir sig frá lóðinni nr. 7 við Norðurtanga.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið og felur fjárreiðudeild að endurgreiða umsækjanda greidd gatnagerðargjöld.

2.Hafnarstræti 80 - umsókn um töku jarðvegssýna

Málsnúmer 2015010205Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. janúar 2015 þar sem Sverrir Gestsson f.h. Norðurbrúar ehf., kt. 620113-0420, sækir um leyfi til töku jarðvegssýna á lóðinni nr. 80 við Hafnarstræti. Jafnframt óskar félagið eftir upplýsingum um það hvort lóðin teljist tilbúin til byggingarframkvæmda af hálfu bæjarins.
Staðgengill skipulagsstjóra heimilar umsækjanda að taka fjórar prufuholur innan byggingarreits. Ganga skal frá holunum þannig að fylling verði þjöppuð og ekki myndist sig.

Upplýsingar um byggingarhæfi lóðarinnar verða sendar umsækjanda.

3.Gránugata 18 - umsókn um niðurrif hesthúss

Málsnúmer 2015010199Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. janúar 2015 þar sem Þorbjörn Guðrúnarson f.h. Bjarma A. Sigurgarðarssonar og Ólafar Ýr Lárusdóttur sækir um leyfi til að rífa matshluta 01 á lóðinni nr. 18 við Gránugötu vegna væntanlegrar endurbyggingar matshlutans.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

4.Norðurvegur 6-8 - fyrirspurn um lögmæti íbúðar til útleigu

Málsnúmer 2015010155Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. janúar 2015 þar sem Teitur Björgvinsson spyrst fyrir um lögmæti íbúðar, í kjallara hússins nr. 6-8 við Norðurveg, Hrísey, til útleigu. Meðfylgjandi eru afstöðumynd og teikningar.

Eigandi hússins er Sparisjóður Norðlendinga ses.
Staðgengill skipulagsstjóra telur að ekki sé hægt að fallast á íbúðarherbergi í kjallara hússins þar sem lofthæð er of lítil miðað við ákvæði byggingarreglugerðar sem er 2,5 metrar.

5.Brekkugata 35 - umsókn um breytingar innanhúss

Málsnúmer 2015010110Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttir sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 35 við Brekkugötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 19. janúar 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

6.Hafnarstræti 90 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090286Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. september 2014 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Hlyns Hallssonar sækir um breytingar á húsi nr. 90 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Strandgata 53 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014070097Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júlí 2014 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Skjaldborgar kröfuhafafélags 10 ehf., kt. 610510-2130, sækir um leyfi fyrir breytingum á húsi nr. 53 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar teikningar 14. janúar 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Helgamagrastræti 53 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalaskýli

Málsnúmer 2014100339Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. október 2014 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Einars Ágústssonar sækir um leyfi fyrir svalaskýli við Helgamagrastræti 53. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Anton Örn Brynjarsson. Innkomnar teikningar 16. janúar 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

9.Daggarlundur 11 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090246Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Daggarlundi 11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 19. janúar 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

10.Daggarlundur 13 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090242Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Daggarlundi 13. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 19. janúar 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

11.Glerárgata 36 - umsókn um breytingar innanhúss

Málsnúmer 2015010175Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. janúar 2015 þar sem Haraldur Árnason f.h. Nesfraktar ehf., kt. 560403-2080, sækir um breytingar innanhúss á Glerárgötu 36. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:30.