Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

524. fundur 15. janúar 2015 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Óseyri 1a - breytingar innan- og utanhúss

Málsnúmer 2015010022Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. janúar 2015 þar sem Haraldur Árnason f.h. Laxagötu ehf., kt. 481214-0680, sækir um breytingar innan- og utanhúss á Óseyri 1a. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason og samþykki meðeigenda í húsinu.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Brekkugata 35 - umsókn um breytingar innanhúss

Málsnúmer 2015010110Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttir sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 35 við Brekkugötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Gleráreyrar 1 - umsókn um breytingar innan og utanhúss.

Málsnúmer BN070271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2014 þar sem Egill Guðmundsson, f.h. Eikar fasteingafélags hf., kt. 590902-3730, leggur inn reyndarteikningar af skipulagi innanhúss. Jafnframt er sótt um breytingar á útliti húss og afmörkuðum skiltaflötum frá áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikingar eftir Egil Guðmundsson. Innkomnar teikningar 9. janúar 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

4.Daggarlundur 13 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090242Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Daggarlundi 13. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Daggarlundur 11 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090246Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Daggarlundi 11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Sómatún 9-17 - breytingar

Málsnúmer 2012080126Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. desember 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum innan- og utanhúss á Sómatúni nr. 9-17. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 14. janúar 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

7.Hjallatún 1-11 - breytingar

Málsnúmer BN060759Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. janúar 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Trétaks ehf., kt 551087-1239, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsinu Hjallatúni 1-11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.