Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

577. fundur 10. mars 2016 kl. 13:45 - 14:50 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Björn Jóhannsson
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Jaðar - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. mars 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Golfklúbbs Akureyrar kt. 570169-7169, sækir um breytingar innanhúss í golfskála Jaðars. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu með vísun í athugasemdalista.

2.Gránufélagsgata 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030038Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2016 þar sem Logi Már Einarsson f.h. RS fasteigna ehf., kt. 701213-0170, sækir um leyfi til að setja að nýju hurð á norðurhlið hússins nr. 4 við Gránufélagsgötu til samræmis við upprunalegt útlit hússins. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Daggarlundur 11 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2014090246Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. mars 2016 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Óseyrar tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 11 við Daggarlund.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Hólabraut 13 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016020222Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. febrúar 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Þ. Arnórsson ehf., kt. 650602-3230, sækir um breytingar innanhúss við Hólabraut 13. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Innkomnar teikningar 7. mars 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Strandgata 53 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016020123Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. febrúar 2016 þar sem Eyjólfur Valgarðsson f.h. Arctic ehf., kt. 520115-2180, sækir um breytingar innanhúss á Strandgötu 53. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Eyjólf Valgarðsson. Innkomnar nýjar teikningar 10. mars 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Hlíðarholtsvöllur - dómhús - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2015110002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. nóvember 2015 þar sem Sigfús Ólafur Helgason f.h. Hestamannafélagsins Léttis, kt. 430269-6849, sækir um stöðuleyfi fyrir dómhúsi við Hlíðarholtsvöll.
Skipulagsstjóri getur ekki veitt umbeðið stöðuleyfi en bendir umsækjanda á að senda inn umsókn um byggingarleyfi ásamt aðalteikningum af húsinu þar sem staðsetning væntanlegs húss er í samræmi við deiliskipulag.

Fundi slitið - kl. 14:50.