Jaðarstún 5-7 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014050118

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 494. fundur - 30.05.2014

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virknis ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 5-7 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 499. fundur - 02.07.2014

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580 sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 5-7 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar mótteknar 24. júní 2014 eftir Birgi Ágústsson.

Vegna mikils fjölda athugasemda og ósamræmis á milli grunn- og útlitsmynda fer skipulagsstjóri fram á að útlitsmyndir og sneiðingar verði tölvuteiknaðar. Erindinu er því frestað.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 502. fundur - 24.07.2014

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi við lóð nr. 5-7 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 14. júlí 2014. Jafnframt er óskað eftir heimild til jarðvegsskipta.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði en samþykkir að gefa út takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum á grundvelli fyrirliggjandi teikninga.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 504. fundur - 14.08.2014

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir Jaðarstún 5-7. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 505. fundur - 21.08.2014

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi á lóð nr. 5-7 við Jaðarstún.
Innkomnar teikningar 19. ágúst 2014 eftir Birgi Ágústsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 624. fundur - 16.03.2017

Erindi dagsett 7. mars 2017 þar sem Birgir Ágústsson fyrir hönd Hölds ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir húsi nr. 5-7 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Birgi Ágústsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 627. fundur - 06.04.2017

Erindi dagsett 29. mars 2017 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Hölds ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum innandyra í húsi nr. 5-7 við Jaðarstún. Sótt er um breytingar á baðherbergi, herbergi og breytingu á glugga í stofu í íbúð nr. 7. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar nyjar teikningar 29. mars 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.