Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

504. fundur 14. ágúst 2014 kl. 13:00 - 14:25 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Aðalstræti 13 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2014070172Vakta málsnúmer

Erindi ódagsett frá Gunnari Njáli Gunnarssyni þar sem hann sækir um leyfi til að gera bílastæði syðst á lóðinni nr. 13 við Aðalstræti með aðkomu frá Duggufjöru skv. meðfylgjandi teikningu. Meðfylgjandi er samþykki meðeiganda og samþykki eiganda efri hæðar Aðalstræti 15.

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðið bílastæði, enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Einnig skal umsækjandi kosta frágang á svæði milli götu og lóðar.

2.Hlíðarfjallsvegur - Glerá - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011030103Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. júlí 2014 þar sem Hrafnkell Sigtryggsson sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Glerá 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Friðrik Friðriksson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Míla - framkvæmdaleyfi fyrir ljósveitu

Málsnúmer 2014040229Vakta málsnúmer

Tvö erindi dagsett 16. júlí. 2014 frá Ingimari Ólafssyni þar sem hann f.h. Mílu ehf., kt. 460207-1690, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 28. maí 2014.
Um er að ræða framkvæmdir samkvæmt meðfylgjandi teikningum við:
1) Skógar- og Furulund, áfangi 1 - svæði 1 og 1B.
2) Eikarlund, áfangi 1 - svæði 2.
3) Þingvallastræti áfangi 1 - svæði 3, 4 og 5.
4) Þingvallastræti, Grundar- og Dalsgerði áfangi 1 - svæði 3, 4 og 5.
Meðfylgjandi er staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.

Skipulagsstjóra samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágaig í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.

4.Óseyri 2a - umsókn um stöðuleyfi fyrir sumarhús

Málsnúmer 2014080022Vakta málsnúmer

Björn Böðvarsson sækir um tímabundið stöðuleyfi fyrir sumarhús á Óseyri 2a. Húsið verður flutt á endanlega staðsetningu haustið 2015, í annað sveitarfélag. Samþykki lóðarhafa liggur fyrir.

 Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

5.Óseyri 2a - framlenging á stöðuleyfi

Málsnúmer BN000195Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31.05.2010 þar sem Gunnar Malmquist og Hermundur Jóhannesson f.h. Vörubílstjórafélagsins Vals, kt. 670269-2059, sækja um framlengingu á bráðabirgða stöðuleyfi fyrir hús félagsins að Óseyri 2a á Akureyri til næstu fimm ára.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til 31. maí 2015.

6.Laxagata 6 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2014070173Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. júlí 2014 frá Rögnvaldi Harðarsyni þar sem hann f.h. Sifjar Sigurðardóttur sækir um leyfi til að gera innan- og utanhúss breytingar á Laxagötu 6. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Hrísalundur 3 - umsókn um stöðuleyfi fyrir frystigáma

Málsnúmer 2013080004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. ágúst 2014 þar sem Birgir Snorrason f.h. Brauðgerðar Kr. Jónssonar og Co. sf., kt. 480169-0859, sækir um áframhaldandi stöðuleyfi fyrir tvo frystigáma sem standa vestan við brauðgerðina að Hrísalundi 3, gámar þessir eru með klukku sem slekkur á þeim kl. 22.30 og kveikir kl. 07.30.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs. Bent er á að uppfylla þurfi kröfur reglugerðar um hávaða.

8.Jaðarstún 1-3 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014050117Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir Jaðarstún 1-3. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

9.Jaðarstún 5-7 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014050118Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir Jaðarstún 5-7. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

10.Jaðarstún 13-15 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014070119Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. júlí 2014 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um byggingarleyfi fyrir Jaðarstún 13-15. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar teikningar 12. ágúst 2014.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið

Fundi slitið - kl. 14:25.