Fjárhagsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar 2011

Málsnúmer 2010090169

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 175. fundur - 01.10.2010

Farið yfir drög að fjárhagsáætlun FA fyrir 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakka fyrir kynninguna. Unnið áfram að áætlun.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 176. fundur - 15.10.2010

Farið yfir drög að fjárhagsáætluninni - 2. umræða

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar fyrir kynninguna. Unnið er áfram að áætlun.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 177. fundur - 29.10.2010

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir árið 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir fjárhagsáætlunina fyrir árið 2011 fyrir sitt leyti og vísar henni áfram til bæjarráðs.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 181. fundur - 28.01.2011

Þriggja ára framkvæmdaáætlun lögð fram.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 182. fundur - 04.02.2011

Drög að þriggja ára framkvæmdaáætlun lögð fram.

Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar vísar þriggja ára áætluninni áfram til bæjarráðs.

Sigfús Karlsson B-lista og Njáll Trausti Friðbertsson D-lista sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar bókað:

Sit hjá við afgreiðslu málsins vegna skorts á gegnsæi við vinnu að þriggja ára framkvæmdaáætlun.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 188. fundur - 20.05.2011

Lagt fram erindi skóladeildar dags. 27. apríl 2011 þar sem fram koma óskir um búnaðarkaup fyrir grunnskóla og Tónlistarskólann á árinu 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir erindið.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 195. fundur - 16.09.2011

Farið yfir endurskoðaða framkvæmdaáætlun og viðhaldsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar.

Afgreiðslu frestað.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 196. fundur - 30.09.2011

Farið yfir endurskoðaða framkvæmdaáætlun og viðhaldsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir endurskoðaða framkvæmdaáætlun og viðhaldsáætlun 2011.