Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

196. fundur 30. september 2011 kl. 10:22 - 11:44 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður María Hammer varaformaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hjörleifur H. Herbertsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Ester Guðbjörnsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2011 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010090169Vakta málsnúmer

Farið yfir endurskoðaða framkvæmdaáætlun og viðhaldsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir endurskoðaða framkvæmdaáætlun og viðhaldsáætlun 2011.

2.Fjárhagsáætlun 2012 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2011090132Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að húsaleiguáætlun FA fyrir árið 2012.

3.Lystigarður - kaffihús og minjagripasala

Málsnúmer 2010110084Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboð sem barst í hönnun raflagna.
Eitt tilboð barst frá Verkís hf að upphæð kr. 991.450.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista vék af fundi undir þessum fundarlið.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að samið verði við Verkís hf á grundvelli tilboðs þeirra.

4.Naustaskóli II. áfangi - nýbygging

Málsnúmer 2010090010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 1 dags. 27. september 2011 vegna framkvæmdarinnar.

5.Þrastarlundur 3-5 - viðbygging

Málsnúmer 2011040037Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 1 dags. 27. september 2011 vegna framkvæmdarinnar.

6.Verkfundargerðir FA 2011

Málsnúmer 2011010023Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram til kynningar:
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9: 5. og 6. verkfundur dags. 15. og 29. september 2011.
Naustaskóli - 2. áfangi - uppsteypa og utanhússfrágangur: 7. verkfundur dags. 20. september 2011.
Þrastarlundur 3-5: 3. verkfundur dags. 16. september 2011.

Fundi slitið - kl. 11:44.