Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

182. fundur 04. febrúar 2011 kl. 10:15 - 11:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Valþór Brynjarsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2011 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010090169Vakta málsnúmer

Drög að þriggja ára framkvæmdaáætlun lögð fram.

Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar vísar þriggja ára áætluninni áfram til bæjarráðs.

Sigfús Karlsson B-lista og Njáll Trausti Friðbertsson D-lista sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar bókað:

Sit hjá við afgreiðslu málsins vegna skorts á gegnsæi við vinnu að þriggja ára framkvæmdaáætlun.

2.Íþróttasvæði Þórs - stúka

Málsnúmer 2008070064Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála varðandi leka í stúkunni.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra og formanni að vinna áfram að málinu.

Þegar hér var komið vék Silja Dögg Baldursdóttir L-lista af fundi kl. 11:25.

3.Gróðrarstöðin Krókeyri - gluggasmíði og klæðning á húsinu

Málsnúmer 2008110034Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skilamat fyrir framkvæmdina.

4.Íþróttahöllin - lagfæringar á lagnagangi 2010

Málsnúmer 2011020010Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skilamat fyrir framkvæmdina.

5.Glerárskóli gluggaskipti í B-álmu og endurbætur á snyrtingum 2010

Málsnúmer 2010030123Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skilamat fyrir framkvæmdina.

6.Verkfundargerðir FA 2011

Málsnúmer 2011010023Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram til kynningar:
12. fundur verkefnisliðs hjúkrunarheimilis dags. 6. janúar 2011.

Fundi slitið - kl. 11:45.