Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

176. fundur 15. október 2010 kl. 10:15 - 11:43 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Valþór Brynjarsson
Dagskrá

1.Naustaskóli - 2. áfangi

Málsnúmer 2010080059Vakta málsnúmer

Rætt um verkáætlun fyrir skólann.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að hafist verði handa við framkvæmdir á 2. áfanga við Naustaskóla á árinu 2011.

2.Fjárhagsáætlun 2011 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010090169Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að fjárhagsáætluninni - 2. umræða

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar fyrir kynninguna. Unnið er áfram að áætlun.

3.Verkfundargerðir FA 2010

Málsnúmer 2010010174Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram til kynningar:
58. verkfundur útboðs 3 v/menningarhúss dags. 8. október 2010.
6. og 7. hönnunarfundur vegna nýs hjúkrunarheimilis dags. 21. og 29. september 2010.

Sigfús Karlsson fulltrúi Framsóknarflokksins óskar bókað:

Í tilefni ákvörðunar meirihluta bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar, L-listans, um breytingu á byggingarstað fyrir hjúkrunarheimili úr Naustahverfi í Vestursíðu, vill fulltrúi Framsóknarflokksins bóka eftirfarandi:

Það vekur furðu að sá hæðarmunur sem er á gólfkóta fyrirhugaðrar byggingar og kóta á Vestursíðu og stígs við lóðarmörk er um 2 metrar samkvæmt 6. lið fundargerðar byggingarnefndar hússins frá 21. september 2010.

Einnig vekur það athygli í 4. lið fundargerðar sömu nefndar frá 29. september 2010 að farið sé að ræða um að breyta hönnun hússins til að aðlaga húsið að lóðinni.

Fundi slitið - kl. 11:43.