Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

175. fundur 01. október 2010 kl. 08:25 - 10:20 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður María Hammer varaformaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Ólafur Jónsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Valþór Brynjarsson
Dagskrá

1.Skjaldarvík - leiga útihúsa

Málsnúmer 2004010122Vakta málsnúmer

Lögð fram drög dags. 1. október 2010 að viðauka við húsaleigusamning um Skjaldarvík varðandi útihúsin.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir framlögð drög.

2.Ytri-Skjaldarvík - beiðni um leigu á einbýlishúsi

Málsnúmer 2010090021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að húsaleigusamningi.

3.Pálmholt - girðing við Skálagerði 5

Málsnúmer 2010090174Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning dags. 30. september 2010 frá skipulagsstjóra er varðar erindi Ragnars Haraldssonar dags. 23. september 2010, þar sem óskað er eftir að girðing sú sem skilur að lóð leikskólans Pálmholts og Skálagerðis verði endurreist til skjóls fyrir mön sem gerð var til varnar flóðum niður á lóðir við Skálagerði.
Vísað til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að setja girðingu og runna, í botnlanga við Skálagerði sem skilur að lóð Pálmholts og Skálagerðis.

4.Endurskoðun fjárhagsáætlunar Fasteigna Akureyrarbæjar 2010

Málsnúmer 2010090084Vakta málsnúmer

Farið yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2010, 2. umræða.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar fyrir kynninguna.

5.Naustaskóli - 2. áfangi

Málsnúmer 2010080059Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 11. september 2010 frá Ágústi Frímanni Jakobssyni skólastjóra Naustaskóla og minnisblað frá Gunnari Gíslasyni fræðslustjóra dags. 30. september 2010 er varða þarfir skólans á komandi misserum.

6.Fjárhagsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar 2011

Málsnúmer 2010090169Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að fjárhagsáætlun FA fyrir 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakka fyrir kynninguna. Unnið áfram að áætlun.

Fundi slitið - kl. 10:20.