Öldrunarheimili Akureyrar - staðsetning hjúkrunarheimilis

Málsnúmer 2009070007

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3233. fundur - 29.07.2010

Lagður fram til kynningar undirskriftarlisti frá starfsmönnum Öldrunarheimila Akureyrar, þar sem mótmælt er staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis í útjaðri Naustahverfis og óskað endurskoðunar á þeirri ákvörðun.

 

Bæjarráð - 3238. fundur - 09.09.2010

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 29. júlí 2010.
Rætt um staðsetningu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

Bæjarráð - 3239. fundur - 16.09.2010

Rætt um staðsetningu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri. Tekið fyrir að nýju, bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum 9. september sl.
Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum gegn 2 atkvæðum Guðmundar Baldvins Guðmundssonar og Njáls Trausta Friðbertssonar að breyta fyrri ákvörðun bæjarráðs um staðsetningu hjúkrunarheimilis og samþykkir að heimilið skuli reist við Vestursíðu.

Fulltrúar A-lista, B-lista, D-lista, S-lista og V-lista óskað bókað:

Við lýsum undrun okkar á því að sú teikning sem liggur fyrir af hjúkrunarheimilinu skuli falla betur að lóð við Vestursíðu en þeirri lóð í Naustahverfi þar sem búið var að ákveða að byggja húsið. Hönnunin hefur augljóslega ekki tekið mið af samþykktri lóð. Af því hlýst að líkindum kostnaður fyrir bæjarsjóð og þess vegna er nauðsynlegt að skýra hvernig á því stendur. Það hafa bæjaryfirvöld ekki gert.

Formaður bæjarráðs óskar bókað:

Ástæða fyrir flutningi hjúkrunarheimilisins er að við teljum betra að reisa það í grónu hverfi. Einnig teljum við æskilegt að staðsetja svona heimili sem víðast um bæinn svo fólk hafi val.

Bæjarráð - 3323. fundur - 14.06.2012

Lögð fram til kynningar drög að viðauka við samning um uppbyggingu og þátttöku í leigu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða á Akureyri dags. 11. maí 2010.

Bæjarráð - 3325. fundur - 05.07.2012

Lagður fram viðauki dags. 5. júlí 2012 við samning um byggingu og þátttöku í leigu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða á Akureyri, dags. 11. maí 2010.

Bæjarráð samþykkir viðaukann.