Kjarasamninganefnd

3. fundur 27. nóvember 2020 kl. 09:00 - 10:21 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir varaformaður
  • Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Reglur um starfskjör - endurskoðun á reglum

Málsnúmer 2020100647Vakta málsnúmer

Umfjöllun um Reglur um starfskjör æðstu stjórnenda Akureyrarbæjar dagsettar 11. október 2017.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri sat fund nefndarinnar undir þessum dagskrárlið.
Kjarasamninganefnd samþykkir tillögu að breytingum á Reglum um starfskjör æðstu stjórnenda Akureyrarbæjar. Tillagan felur í sér að frá 1. júlí 2020 verður hætt að greiða framlag í námsleyfasjóð embættismanna. Frá sama tíma mun Akureyrarbær hefja greiðslur gjalda til stéttarfélaga í samræmi við ákvæði kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við þau stéttarfélög sem um ræðir. Breytingar þessar hafa ekki í för með sér kostnaðarauka fyrir Akureyrarbæ.

2.Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu

Málsnúmer 2020050662Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 26. nóvember 2020 að sameina fjölskyldusvið og búsetusvið í eitt velferðarsvið og gildir nýtt skipurit frá 1. janúar 2021. Bæjarráð vísaði jafnframt á fundi sínum afgreiðslu vegna starfslýsinga fyrir starf forstöðumanns skrifstofu og leiðandi forstöðumanna til umfjöllunar í kjarasamninganefnd.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjaráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns skrifstofu á velferðarsviði. Niðurstaða kjarasamninganefndar er að samkvæmt gildandi reglum um stjórnendaálag forstöðumanna hafi breyting á starfslýsingum þriggja forstöðumanna í þá veru að störfin verði leiðandi forstöðumenn ekki í för með sér breytingar á greiðslu stjórnendaálags vegna umræddra starfa.

3.Skólastjórafélag Íslands - kjarasamningur 2020-2021, bókun 5

Málsnúmer 2020110842Vakta málsnúmer

Kynnt erindi frá Karli Frímannssyni fræðslustjóra dags. 26. nóvember 2020 vegna bókunar 5 í nýgerðum kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Afgreiðslu frestað.

4.Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga - starfsmat

Málsnúmer 2020110844Vakta málsnúmer

Umfjöllun um niðurstöðu starfsmats fyrir störf hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Fundi slitið - kl. 10:21.