Íþróttaráð

155. fundur 04. september 2014 kl. 14:00 - 16:11 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Árni Óðinsson
  • Birna Baldursdóttir
  • Jónas Björgvin Sigurbergsson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá
Jónas Björgvin Sigurbergsson Æ-lista mætti í forföllum Sigurjóns Jónassonar.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá málið Tímaúthlutun ÍBA og ÍRA, sem verði 1. liður á dagskrá og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

1.Tímaúthlutun ÍBA og ÍRA

Málsnúmer 2013080211Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2014 frá Geir Kristni Aðalsteinssyni formanni Íþróttabandalags Akureyrar þar sem óskað er eftir því að ÍBA fái heimild til að úthluta fleiri tímum til aðildarfélaga ÍBA í íþróttahúsi Glerárskóla.

Íþróttaráð samþykkir erindið.

2.Vetraríþróttamiðstöð Ísland (VMÍ)

Málsnúmer 2014080131Vakta málsnúmer

Ársreikningur VMÍ fyrir starfsárið 2013 lagður fram til kynningar og umræðu.

3.Zalibuna ehf - umsókn um afnot af aðstöðunni í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2014090022Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2014 frá Davíð Erni Símonarsyni framkvæmdastjóra Zalibunu ehf þar sem óskað er eftir samstarfi og leyfi íþróttaráðs til að setja niður eins manns sleðarennibraut niður Andrésarbrekkuna yfir sumartímann og leigja og hafa afnot af aðstöðunni í Hlíðarfjalli.

Íþróttaráð fagnar erindinu og felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram með hlutaðeigandi aðilum.

4.Kvenna-/jafnréttisstyrkir íþróttaráðs

Málsnúmer 2014040042Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. ágúst 2014 frá Stefáni Vilberg Leifssyni formanni körfuknattleiksdeilar Þórs þar sem óskað er eftir styrk og undanþágu á viðmiðum íþróttaráðs vegna afgreiðslu jafnréttisstyrkja.
Árni Óðinsson S-lista vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

Íþróttaráð samþykkir að veita körfuknattleiksdeild Þórs 250.000 kr. styrk til reksturs kvennadeildar.

5.KKA - styrkbeiðni vegna gatnagerðar- og byggingarleyfisgjalds

Málsnúmer 2014080055Vakta málsnúmer

Á fundi sínum þann 21. ágúst sl. gerði bæjarráð eftirfarandi bókun:
Erindi dagsett 15. ágúst 2014 frá Þorsteini Hjaltasyni formanni KKA Akstursíþróttafélags varðandi álögð gjöld bæjarins á íþróttafélög.
Bæjarráð getur ekki orðið við ósk um niðurfellingu gjalda en samþykkir að vísa erindinu um styrkveitingu til íþróttaráðs og að svara bréfritara að öðru leyti.

Íþróttaráð frestar erindinu.

6.Fjárhagsáætlun 2015 - íþróttaráð

Málsnúmer 2014080009Vakta málsnúmer

Unnið að fjárhagsáætlun 2015 og 3ja ára áætlun.

Fundi slitið - kl. 16:11.