Fræðsluráð

43. fundur 18. janúar 2021 kl. 13:30 - 15:45 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Inda Björk Gunnarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Sindri Kristjánsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs boðaði forföll.
Í upphafi fundar óskaði formaður afbrigða frá útsendri dagskrá um að bæta við 8. lið, Heilsuefling - starfshópur, á dagskrá. Óskin var samþykkt samhljóða.

1.Menntastefna Akureyrarbæjar - framkvæmd

Málsnúmer 2020080319Vakta málsnúmer

Kristrún Lind Birgisdóttir hjá Ásgarði ehf. (fyrrum Tröppu ehf.) kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðunni á innleiðingu menntastefnunnar í leik-, grunn- og tónlistarskólum.

2.Rekstur fræðslumála 2020

Málsnúmer 2020010575Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar rekstrarstöðu fræðslumála fyrstu 11 mánuði ársins 2020 og fyrstu drög að heildarniðurstöðu ársins.

3.Framboð grænkerafæðis í skólum - áskorun til sveitarfélaga og skólastjórnenda

Málsnúmer 2020121440Vakta málsnúmer

Áskorun frá Samtökum grænkera á Íslandi lögð fram til kynningar.

4.Skólavogin 2020

Málsnúmer 2020030391Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir niðurstöðum úr Skólavoginni árið 2020.
Fræðsluráð telur mikilvægt að allir skólar vinni kerfisbundið með niðurstöður úr Skólavoginni og geri grein fyrir þeirri vinnu í umbótaáætlun skólanna.

Sviðsstjóra fræðslusviðs er falið að fylgja því eftir.

5.Fræðslusvið - staða verkefna

Málsnúmer 2021010287Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir stöðu verkefna skv. 21. gr. samþykktar um fræðsluráð.

6.Matseðlar í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2021010082Vakta málsnúmer

Erindi frá Eyrúnu Gísladóttur vegna matseðla í leik- og grunnskólum.

Erindið er tvíþætt. Annars vegar ábending um að uppfæra þurfi matseðla í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar til að manneldismarkmiðum Embættis landlæknis verði náð. Hins vegar er ósk um að hægt verði að velja um jurtafæði í mötuneytum leik- og grunnskólanna.
Fræðsluráð þakkar Eyrúnu Gísladóttur fyrir greinargott erindi og telur mikilvægt að eiga reglulega umræðu um heilbrigði og velferð barna í sveitarfélaginu. Sú breyting að foreldrar hafi val um að börnin þeirra fái jurtafæði í leik- og grunnskólum bæjarins er allrar athygli verð. Fræðsluráð bendir á að frumskylda Akureyrarbæjar sé að fylgja manneldismarkmiðum Embættis landlæknis sem styðst við samnorrænar leiðbeiningar. Fræðsluráð tekur undir mikilvægi þess að ávallt sé boðið upp á fjölbreytt fæði í mötuneytum leik- og grunnskóla bæjarins og að hlutur grænmetis og ávaxta fari sívaxandi á sama tíma og hugað er að eins hreinum afurðum og gerlegt er hverju sinni. Þegar kjöt er í aðalrétt skal þess gætt að aðrir fæðuflokkar standi börnum til boða. Jafnframt telur fræðsluráð nauðsynlegt að höfð sé eftirfylgni með því að manneldismarkmiðum sé fylgt á hverjum stað fyrir sig.

Fræðsluráð felur fræðslustjóra að koma á reglubundnum úttektum á matseðlum og gæðum matarins í mötuneytum skólanna auk þess að fylgja því eftir að í öllum skólum séu markmið Embættis landlæknis höfð að leiðarljósi og að matseðlar séu lýsandi fyrir það fjölbreytta fæði sem í boði er.

7.Dagvistun, dagforeldrafélag á Akureyri - staða dagforeldra

Málsnúmer 2020120539Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 4. desember 2020 frá Dagvistun, félagi dagforeldra sem varðar stöðu dagforeldra haustið 2021.
Fræðsluráð felur dagforeldrateymi á fræðslusviði að svara erindinu á grundvelli meðfylgjandi minnisblaðs. Að svo komnu máli er ekki veitt heimild til aukinna niðurgreiðslna vegna daggæslu.

8.Heilsuefling - starfshópur

Málsnúmer 2020100021Vakta málsnúmer

Þuríður Árnadóttir formaður starfshóps um heilsueflingu gerði grein fyrir vinnu hópsins.

Fundi slitið - kl. 15:45.