Dagvistun, dagforeldrafélag á Akureyri - staða dagforeldra

Málsnúmer 2020120539

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 43. fundur - 18.01.2021

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 4. desember 2020 frá Dagvistun, félagi dagforeldra sem varðar stöðu dagforeldra haustið 2021.
Fræðsluráð felur dagforeldrateymi á fræðslusviði að svara erindinu á grundvelli meðfylgjandi minnisblaðs. Að svo komnu máli er ekki veitt heimild til aukinna niðurgreiðslna vegna daggæslu.