Fræðsluráð

39. fundur 19. október 2020 kl. 13:30 - 15:45 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Inda Björk Gunnarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Jóhanna María Agnarsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Sindri Kristjánsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra boðaði forföll.

Í upphafi fundar óskaði formaður afbrigða frá útsendri dagskrá um að færa lið 5 undir lið 1 ásamt því að bæta inn 7. lið, Sveigjanlegt starfsumhverfi - bókun 3 á dagskrá. Óskin var samþykkt samhljóða.

1.Sérúrræði í leikskólum - kynning

Málsnúmer 2020100445Vakta málsnúmer

Elva Haraldsdóttir sérkennsluráðgjafi í leikskólum kom á fundinn og kynnti breytt vinnufyrirkomulag við útfærslu sérúrræða í leikskólum.
Inda Björk Gunnarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra kom til fundar kl. 13:50.

2.Heilsuefling - starfshópur

Málsnúmer 2020100021Vakta málsnúmer

Erindisbréf starfshópsins lagt fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfestir erindisbréfið samhljóða.

3.Staðfesting á skólasókn

Málsnúmer 2018100121Vakta málsnúmer

Eitt af lögbundnum verkefnum fræðsluráðs sbr. 6. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla er ,,að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu." Endanleg greinargerð um skólavist var lögð fram á fundinum.
Fræðsluráð staðfestir greinargerð þessa samhljóða.

4.Fundaáætlun fræðsluráðs

Málsnúmer 2019110153Vakta málsnúmer

Fundaáætlun fræðsluráðs fyrir árið 2021 lögð fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfestir fundaáætlun fyrir árið 2021 samhljóða.

5.ESPAD - skýrsla um vímuefnanotkun unglinga á Norðurlandi eystra

Málsnúmer 2020100410Vakta málsnúmer

Skýrsla ESPAD um vímuefnanotkun unglinga á Norðurlandi eystra lögð fram til kynningar.

6.Viðbragðsáætlun og aðgerðir á fræðslusviði

Málsnúmer 2020030390Vakta málsnúmer

Upplýsingar um viðbrögð við Covid-smitum í skólum bæjarins lagðar fram til kynningar.

Fræðsluráð lýsir yfir fullum stuðningi við þær sóttvarnaaðgerðir sem gripið hefur verið til í skólum Akureyrarbæjar. Starfsfólk á miklar þakkir skilið fyrir fumlaus viðbrögð og starfshætti sem er lykillinn að þeim góða árangri sem náðst hefur.

7.Sveigjanlegt starfsumhverfi - bókun 3

Málsnúmer 2020100504Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar ákvæði í bókun 3 í nýgerðum kjarasamningi Félags grunnskólakennara og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 15:45.