Fræðslu- og lýðheilsuráð

43. fundur 04. desember 2023 kl. 13:00 - 15:30 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ísak Már Jóhannesson
Starfsmenn
  • Kristín Jóhannesdóttir sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá
Ísak Már Jóhannesson S-lista sat fundinn í forföllum Rannveigar Elíasdóttur.
Tinna Guðmundsdóttur F-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.

1.Fræðslu- og lýðheilsuráð - heimsókn í íþróttamannvirki

Málsnúmer 2022110690Vakta málsnúmer

Jón Benedikt Gíslason framkvæmdastjóri Skautafélags Akureyrar og Tryggvi Heimisson formaður Siglingaklúbbsins Nökkva tóku á móti fræðslu- og lýðheilsuráði og sögðu frá starfsemi félaganna og sýndu ráðinu viðkomandi mannvirki.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar þeim Jóni og Tryggva fyrir kynninguna.

2.Karatefélag Akureyrar - aðstöðumál Karatefélags Akureyrar

Málsnúmer 2023111465Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. nóvember 2023 frá Geir Kr. Aðalsteinssyni formanni ÍBA varðandi aðstöðuleysi Karatefélags Akureyrar sem mun missa aðstöðu sína í lok þessa árs.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram.

3.Styrkbeiðni frá lyftingadeild KA

Málsnúmer 2023091637Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 18. september 2023 frá stjórn Lyftingadeilar KA þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á búnaði og styrk vegna leigu á aðstöðu fyrir deildina. Erindið var fyrst á dagskrá ráðsins 9. október sl. þar sem erindinu var frestað og óskað eftir frekari upplýsingum um málið. Frekari gögn hafa nú borist.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir að veita Lyftingardeild KA styrk að upphæð 300 þúsund krónur til kaupa á keppnisbúnaði vegna mótahalds.

4.Íþróttafélagið Þór - beiðni um samningaviðræður

Málsnúmer 2023031752Vakta málsnúmer

Mál frá 42. fundi fræðslu- og lýðheilsuráðs. Fræðslu- og lýðheilsuráð fól sviðsstjóra að gera drög að erindisbréfi vinnuhóps vegna framtíðaruppbyggingar og skipulags á félagssvæði Þórs og kynna fyrir ráðinu á næsta fundi. Lögð fram drög að erindisbréfi starfshópsins.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir erindisbréf vinnuhópsins.

5.Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs janúar til október 2023

Málsnúmer 2023031680Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason rekstrarstjóri gerði grein fyrir rekstrarstöðu fræðslu- og lýðheilsusviðs á tímabilinu janúar til október 2023.

Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlauga Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.


Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

6.Barnvænt sveitarfélag - gátlistar

Málsnúmer 2023091180Vakta málsnúmer

Lagt fram barnvænt hagsmunamat fundarins.


Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

Fundi slitið - kl. 15:30.