Félagsmálaráð

1164. fundur 15. maí 2013 kl. 14:00 - 17:45 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Alfreðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2013 - áfrýjanir

Málsnúmer 2013010061Vakta málsnúmer

Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Fjárhagsaðstoð 2013

Málsnúmer 2013010062Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu fjóra mánuði ársins 2013.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnafulltrúi B-lista mætti á fundinn kl. 14:45.

3.Áfangaheimili á Akureyri

Málsnúmer 2013050071Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 18. apríl 2013 frá Gunnari Ómarssyni f.h. líknarfélagsins Vegamóta þar sem kynnt er hugmynd að stofnun áfangaheimilis á Akureyri.

Félagsmálaráð felur Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar að kalla saman vinnuhóp þvert á deildir bæjarins auk fulltrúa frá Vegamótum, SÁÁ og FSA, sem hafi það hlutverk að meta þörf fyrir áfangaheimili á Akureyri og með hvaða hætti megi koma slíku heimili á fót, ef þörf reynist vera fyrir hendi. Félagsmálaráð óskar eftir skýrslu um málið í ágústmánuði nk.

4.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynntu stöðuna varðandi Notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Lagt fram minnisblað Karólínu dags. 13. maí 2013

Félagsmálaráð samþykkir að hafa opið fyrir umsóknir um NPA samninga til 1. júní nk. Jafnframt samþykkir félagsmálaráð framkomna kostnaðaráætlun vegna NPA árið 2013 enda rúmist útgjöldin innan áætlaðra tekna málaflokksins.

5.Neytendasamtökin - styrkbeiðni fyrir árið 2013

Málsnúmer 2012100151Vakta málsnúmer

Erindi dags. 19. október 2012 frá Jóhannesi Gunnarssyni f.h. Neytendasamtakanna varðandi styrkveitingu til samtakanna á árinu 2013.

Félagsmálaráð getur ekki orðið við erindinu.

6.Samtök um sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra - styrkbeiðni 2013

Málsnúmer 2013040049Vakta málsnúmer

Umsókn dags. 8. apríl 2013 frá Hugrúnu Stefánsdóttur f.h. Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra þar sem sótt er um styrk að upphæð kr. 175.000 til reksturs félagsins.

Félagsmálaráð samþykkir styrkveitingu að upphæð kr. 175.000.

7.Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð ses - styrkbeiðni 2012

Málsnúmer 2012100081Vakta málsnúmer

Erindi dags. 9. október 2012 frá Sjónarhóli - ráðgjafarmiðstöð ses þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk.

Félagsmálaráð samþykkir styrkveitingu að upphæð kr. 300.000.

8.Stígamót - styrkbeiðni fyrir árið 2013

Málsnúmer 2012110022Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. mars 2013 frá Stígamótum þar sem beðið er um styrk til starfseminnar.

Félagsmálaráð getur ekki orðið við erindinu.

9.Búsetudeild - kynning á starfsemi 2013

Málsnúmer 2013050064Vakta málsnúmer

Ingibjörg Jónsdóttir og Birgit Schov forstöðumenn mættu á fundinn og kynntu þjónustuna í Geislatúni/Hafnarstræti, Klettatúni/Kjarnagötu/Snægili og Kjalarsíðu/Dvergagili.

Félagsmálaráð þakkar fyrir kynninguna.

10.Félagsstofnun stúdenta - leiga á íbúðum

Málsnúmer 2010060122Vakta málsnúmer

Akureyrarbær leigir nokkrar íbúðir af Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) og endurleigir til fólks sem þarf félagslegt húsnæði. Í nokkrum þeirra er veitt allt að sólarhringsþjónusta til íbúa sem þar búa. Samningurinn við FÉSTA rennur út 1. janúar 2016 og er mikilvægt að tímanlega liggi fyrir hvort um áframhaldandi leigu verði að ræða eða hvort finna þurfi viðkomandi einstaklingum nýtt húsnæði.

Félagsmálaráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins fram í ágúst nk.

11.Búsetudeild - einstaklingsmál 2013

Málsnúmer 2013050068Vakta málsnúmer

Kynning á málefni einstaklings - trúnaðarmál.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Fundi slitið - kl. 17:45.