Félagsmálaráð

1138. fundur 25. janúar 2012 kl. 14:00 - 16:40 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Pétur Maack Þorsteinsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðlaug Kristinsdóttir varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.Félagsmálaráð - móttaka nýrra nefndarmanna

Málsnúmer 2012010299Vakta málsnúmer

Tveir nýir nefndarmenn taka sæti í félagsmálaráði en það eru Petrea Ósk Sigurðardóttir (B) og Pétur Maack Þorsteinsson (S). Varamenn eru Guðlaug Kristinsdóttir (B) og Dagbjört Pálsdóttir (S).

Formaður, Inda Björk Gunnarsdóttir, bauð nýja nefndarmenn velkomna og fór yfir starfshætti félagsmálaráðs auk þess sem hún kynnti siðareglur kjörinna fulltrúa sem samþykktar voru í bæjarstjórn 21. desember 2010.

2.Skammtímavistun - aukin þjónusta

Málsnúmer 2011090046Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, S. Anna Einarsdóttir forstöðumaður skammtímavistunar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu þörf fyrir aukna þjónustu vegna neyðarvistunar eins einstaklings sex daga vikunnar í skammtímavistuninni. Lagt var fram trúnaðarskjal dag. 24. janúar 2012.

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti aukna þjónustu í skammtímavistun. Málinu vísað til bæjarráðs.

3.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2011

Málsnúmer 2011010146Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar minnisblað dags. 2. janúar 2012 frá Jóni Heiðari Daðasyni húsnæðisfulltrúa um stöðu biðlista eftir leiguhúsnæði hjá Akureyrarbæ 31. desember 2011. Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.

4.Heimahjúkrun - 2012

Málsnúmer 2012010248Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti stöðuna í heimahjúkrun eins og hún var í árslok 2011.

5.Þjónustusamningur heilbrigðisráðuneytis og Akureyrarbæjar um heilsugæslu 2008-2010

Málsnúmer 2012010237Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti skýrslu vegna þjónustusamnings Akureyrarbæjar og þáverandi heilbrigðisráðuneytis um heilsugæsluþjónustu fyrir árin 2008-2010. Fram kemur í skýrslunni hvernig niðurskurður hefur haft áhrif á þjónustu og starfsemi heilsugæslunnar.

Félagsmálaráð lýsir yfir áhyggjum af fjölda íbúa sem ekki eiga kost á heimilislækni. Einnig veldur aukið álag í heimahjúkrun áhyggjum þar sem fjárveitingar hafa ekki haldist í hendur við aukna þörf fyrir þjónustu.

Þegar hér var komið vék Pétur Maack Þorsteinsson af fundi kl. 15:55.

6.Öldrunarrými - staða biðlista 2011

Málsnúmer 2011010134Vakta málsnúmer

Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA kynnti stöðu biðlista eftir hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum, skammtímadvöl og dagvistarrýmum á ÖA. Lagt var fram yfirlit yfir biðlista eftir öldrunarþjónustu á Akureyri. Fækkað hefur á biðlistum eftir hjúkrunarrými og skammtímadvöl vegna mikilla breytinga á árinu, 14 eru á biðlista eftir hjúkrunarrými, 9 eftir dvalarrými, 13 eftir skammtímadvöl og 10 eftir dagvist á ÖA.
Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar sátu fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir stöðunni í heimaþjónustu og heimahjúkrun.

7.Skýrsla um félagsþjónustu sveitarfélaga 2011

Málsnúmer 2012010297Vakta málsnúmer

Skýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga um félagsþjónustu sveitarfélaga 2011 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:40.