Bæjarstjórn

3360. fundur 07. október 2014 kl. 16:00 - 17:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Dagur Fannar Dagsson L-lista mætti í forföllum Silju Daggar Baldursdóttur.

Forseti bauð Dag Fannar Dagsson velkominn á hans fyrsta fund í bæjarstjórn.

Í upphafi fundar leitaði forseti afbrigða til að taka á dagskrá málið Opinber störf á landsbyggðunum, sem verði 5. liður á dagskrá og var það samþy

1.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018

Málsnúmer 2014060234Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um breytingu á skipan varamanns í samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra:
Dagur Fannar Dagsson tekur sæti varamanns í stað Tryggva Más Ingvarssonar.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Kosning nefnda 2014-2018 - svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar

Málsnúmer 2014060061Vakta málsnúmer

Tilnefning tveggja fulltrúa Akureyrarbæjar í svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar og tveggja til vara.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að tilnefna þau Evu Reykjalín Elvarsdóttur og Edward Hákon Huijbens sem aðalmenn í svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar og  Sigurjón Jóhannesson og Ólínu Freysteinsdóttur til vara.

3.Oddeyrartangi landnr. 149144 (Laufásgata 8) - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2014070031Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 24. september 2014:
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hafnasvæða sunnan Glerár var grenndarkynnt frá 18. ágúst til 15. september 2014.
Þrjár athugasemdir bárust vegna grenndarkynningar:
1) Norðurorka, dagsett 27. ágúst 2014.
Um er að ræða verulega breytingu fyrir Norðurorku þar sem aðkoma að dælustöð mun þá verða innan lóðar Oddeyrartanga landnr. 149144. Skilyrði þess að Norðurorka geti fallist á breytinguna er að kvaðir verði lagðar á lóðina. Kvaðirnar komi fram á deiliskipulagsuppdrætti og að haft verði samráð við Norðurorku um útfærslu kvaðanna.
2) Útgerðarfélag Akureyrar, dagsett 2. september 2014. Engar athugasemdir eru gerðar.
3) Ragna Ragnars, dagsett 15. september 2014. Fallist er á breytinguna ef eignarhlutföll lóðarinnar breytast ekki.
Svör við athugasemdum:
1) Samráð var haft við Norðurorku um ákvæði um kvaðir vegna aðkomu að dælustöð NO. Kvaðirnar eru skilgreindar á deiliskipulagsuppdrætti og í greinargerð.
2) Gefur ekki tilefni til svars.
3) Umrædd lóð stækkar um 1.938,7 m2 við að gatan Silfurtangi er felld niður og sameinuð lóðinni Oddeyrartanga landnr. 149144. Hlutur eignarlóðar Rögnu Ragnars er 62,34% og hlutur Akureyrarbæjar er 37,66% fyrir breytingu. Lóðarhlutinn sem bætist við heildarlóðina er hluti lands Akureyrarbæjar.
Því er ekki óeðlilegt að gerð verði breyting á hlutföllum eignarlandsins í samræmi við það og verði því eftirfarandi:
Hlutur Akureyrarbæjar eftir breytingu verður 42,5% og hlutur Rögnu Ragnars verður 57,5% sem skerðist því hlutfallslega ekki hvað fermetra eignalandsins varðar við breytinguna.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Vinabæir og erlend samskipti

Málsnúmer 2014090064Vakta málsnúmer

Bæjarfulltrúi Gunnar Gíslason D-lista óskaði eftir að tekin yrði umræða um vinabæja- og önnur erlend samskipti.
Almennar umræður.

 

5.Opinber störf á landsbyggðunum

Málsnúmer 2014070017Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að bókun svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrar lýsir furðu sinni á andstöðu formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga við uppbyggingu opinberra starfa á landsbyggðunum, sem birtist í tillöguflutningi hans í borgarráði Reykjavíkur. Orð hans um að gætt sé sérstaklega að "mikilvægi höfuðborgarinnar" þegar kemur að uppbyggingu opinberra stofnana eru í besta falli hjákátleg þegar horft er til þess að nær öll opinber störf á landinu verða til í Reykjavík. Tregða í kerfinu virðist hamla fjölgun opinberra starfa á landsbyggðunum hvort sem það er gert með flutningi stofnana eða staðsetningu nýrra stofnana. Eina leiðin til þess að breytingar verði og fleiri opinber störf byggist upp vítt og breitt um landið er með pólitískri ákvörðun.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða bókun með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 18. og 24. september og 2. október 2014
Bæjarráð 18. og 24. september og 2. október 2014
Félagsmálaráð 17. og 24. september 2014
Framkvæmdaráð 19. og 26. september 2014
Íþróttaráð 25. september 2014
Samfélags-

Fundi slitið - kl. 17:15.