Bæjarstjórn

3359. fundur 16. september 2014 kl. 16:00 - 19:37 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði forseti afbrigða til að taka á dagskrá málið Ráðning aðstoðarmanns bæjarstjóra, sem verði 7. liður á dagskrá og var það samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

1.Fiskitangi 4 - breyting á deiliskipulagi vegna niðurrifs bragga

Málsnúmer 2014070148Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 10. september 2014:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi "Hafnarsvæða sunnan Glerár" í samræmi við bókun nefndarinnar 30. júlí sl. Breytingartillagan gerir ráð fyrir niðurrifi á tveimur bröggum á lóðinni nr. 4 við Fiskitanga, matsnúmer 214-9755 og 214-9759. Tillagan er unnin af Fanneyju Hauksdóttur arkitekt hjá AVH teiknistofu ehf, dagsett 1. september 2014.
Í umsögn Norðurorku, dagsettri 4. september 2014, kemur fram að Norðurorka eigi dreifistöð við braggana. Finna þarf lausn þannig að dreifistöðin verði í útkanti nýbyggingarinnar við opna umferð eða þá að eldri stöð við Hafnarhús verði stækkuð. Einnig er möguleiki á að stöðin verði á núverandi stað ef aðkoma verður tryggð.
Einungis er um að ræða niðurrif á tveimur bröggum þar sem fyrir liggur jákvæð umsögn Minjastofnunar um niðurrifið og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd tekur undir umsögn Norðurorku um að fundin skuli lausn á málefni spennistöðvar, sem er innan lóðar ÚA, áður en hafnar verði breytingar á mannvirkjum.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Breiðholt, hesthúsahverfi - Perlugata 7, deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2014090036Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 10. september 2014:
Erindi dagsett 4. september 2014 frá Hjalta Jóni Sveinssyni þar sem hann sækir um breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfisins Breiðholts. Um er að ræða stækkun á byggingarreit um tvo metra til norðurs.
Meðfylgjandi er tillaga að deiliskipulagsbreytingu dagsett 8. september 2014, sem er í samræmi við ofangreint og unnin af Landslagi ehf.
Einungis er um að ræða stækkun á byggingarreit um tvo metra innan lóðar og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Nýtingarhlutfall lóðarinnar helst óbreytt.
Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Samþykktir fastanefnda endurskoðun 2014 - bæjarráð

Málsnúmer 2013060144Vakta málsnúmer

7. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 21. ágúst 2014:
Lögð fram tillaga að breytingum á samþykkt fyrir bæjarráð Akureyrar.
Bæjarráð vísar tillögu að breytingum á samþykkt fyrir bæjarráð til bæjarstjórnar með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samþykkt fyrir bæjarráð Akureyrar með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Samþykkt fyrir kjarasamninganefnd Akureyrar endurskoðun 2014

Málsnúmer 2014080112Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 4. september 2014:
1. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 26. ágúst 2014:
Lögð fram til umsagnar tillaga að breytingum á samþykkt fyrir kjarasamninganefnd Akureyrar.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samþykkt fyrir kjarasamningnefnd Akureyrar og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samþykkt fyrir kjarasamninganefnd Akureyrar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017

Málsnúmer 2013050198Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 4. september 2014:
Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017 vegna fjárveitinga til búsetudeildar vegna brýnna þarfa þriggja einstaklinga fyrir húsnæði og sérhæfða þjónustu og vegna rekstrarsamnings um rekstur Lautarinnar sem samþykkt voru í bæjarráði 28. ágúst sl.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Skólamál - umræða

Málsnúmer 2013100100Vakta málsnúmer

Bæjarfulltrúi Gunnar Gíslason D-lista óskaði eftir að tekin yrði umræða um skólamál á Akureyri, stöðu og framtíð.

Almennar umræður urðu í kjölfarið.

7.Ráðning aðstoðarmanns bæjarstjóra

Málsnúmer 2014090115Vakta málsnúmer

Umræða um ráðningu aðstoðarmanns bæjarstjóra.

8.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 2., 9., 17., 24. og 30. júlí, 14., 21. og 28. ágúst, og 5. og 11. september 2014
Bæjarráð 3., 10., 17. og 31. júlí, 7., 14., 21. og 28. ágúst, 4. og 11. september 2014
Félagsmálaráð 2. júlí, 20. ágúst og 3. sep

Fundi slitið - kl. 19:37.